Handknattleikskonan Aldís Ásta Heimisdóttir hefur á ný gengið til liðs við KA/Þór. Aldís Ásta tekur þó ekki upp þráðinn með liðinu fyrr en í haust en hún á von á sínu fyrsta barni í vor.
Í tilkynningu KA/Þórs segir að Aldís Ásta sé staðráðin í að koma öflug til baka á völlinn og ljóst að það verði gríðarlega sterkt að fá hana aftur heim. Aldís Ásta lék stórt hlutverk með KA/Þór þegar liðið varð Íslandsmeistari 2021 og bikarmeistari í kjölfarið.
Undanfarin tæp fjögur ár hefur Aldís farið hamförum með liði Skara HF í Svíþjóð þar sem hún var lykilmaður þegar liðið varð bæði Svíþjóðarmeistari og deildarmeistari vorið 2025. Voru það fyrstu meistaratitlar Skánarliðsins. Aldís Ásta var leyst undan samningi hjá Skara HF í desember þegar hún ákvað að flytja á ný heim í höfuðstað Norðurlands.
Aldís Ásta, sem er 26 ára gömul, er uppalin hjá KA/Þór og hóf ung að leika með meistaraflokki félagsins en fyrstu leikirnir voru veturinn 2014-2015. Aldís lék alls 170 keppnisleiki fyrir KA/Þór fyrir flutninginn til Svíþjóðar og hefur auk þess leikið með A-landsliðinu og yngri landsliðunum.
Aldís Ásta er sænskur meistari með Skara HF
Þetta er stórt fyrir Skara – hugur í Aldísi Ástu – úrslitakeppni á næsta leiti
Hætt hjá Skara HF og flytur heim til Íslands



