- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Andlát: Óli P. Olsen

- Auglýsing -

Óli P. Olsen handknattleiksdómari og eftirlitsmaður lést 10. febrúar eftir baráttu við krabbamein. Óli fæddist 1943. Greint er frá andláti Óla á vef HSÍ.

„Óli byrjaði að dæma handbolta 1967 og dæmdi allt til ársins 1995, lengst af með Gunnlaugi Hjálmarssyni en hann dæmdi líka með Gunnari Kjartanssyni og Ólafi Erni Haraldssyni ásamt fleirum. Hann varð milliríkjadómari 1977 og lauk þeim ferli árið 1993 þegar hann varð fimmtugur. Eftir það starfaði Óli í mörg ár sem eftirlitsmaður á Íslandi.


Óli var líka knattspyrnudómari í fremstu röð bæði hér heima og erlendis og sinnti hann dómgæslu í báðum greinum í tugi ára. Óli virkaði sem hógvær og hlédrægur persónuleiki sem lét lítið fyrir sér fara. Hann var vinur vina sinna, hjálpsamur og geislaði af honum í góðra vina hópi. Hann var farsæll dómari og menn minnast hans sem slíks en ekki vegna einhverra atvika á velli sem tengdust honum eins og oft vill verða þegar atburðir eru rifjaðir upp.“

Blessuð sé minning Óla P. Olsen.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -