Þrátt fyrir fjarveru Viggós Kristjánssonar þá unnu leikmenn HC Erlangen kærkominn sigur á Rhein-Neckar Löwen, 29:27, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Andri Már Rúnarsson beit í skjaldarrendur í fjarveru landa síns og skoraði fimm mörk og gaf þrjár stoðsendingar. Þrjú markanna skoraði Andri Már úr vítaköstum. Hann var markahæsti leikmaður liðsins.
Haukur var á bak við 17 mörk
Haukur Þrastarson fór á kostum með Rhein-Neckar Löwen og skoraði átta mörk og gaf níu stoðsendingar. Haukur skoraði einnig þrjú mörk úr vítaköstum. Sem fyrr naut línumaðurinn Jannik Kohlbacher glöggs auga Hauks og útsjónarsemi og skoraði sjö mörk.
Naumt hjá Einari Þorsteini
Einar Þorsteinn Ólafsson lék var vanda í vörn HSV Hamburg í dag þegar liðið sótti GWD Minden heim og vann með eins marks mun, 30:29. Einar Þorsteinn skoraði ekki mark en átti eina stoðsendingu auk þess að nappa einu sinni boltanum af andstæðingi.
Frederik Bo Andersen skoraði átta mörk fyrir HSV Hamburg eins og landi hans Morten Hempel Jensen fyrir GWD Minden.
Sitja áfram á botninum
Blær Hinriksson og liðsfélagar í Leipzig sitja áfram í neðsta sæti. Þeir töpuðu með 13 marka mun fyrir Füchse Berlin, 39:26, í Max Schmeling Halle í Berlin. Blær skoraði eitt mark og gaf tvær sendingar í leiknum í dag í keppnishöllinni sem nefnd er eftir hnefaleikakappanum heimsþekkta.
Lasse Bredekjær Andersson og Mathias Gidsel skoruðu sex mörk hvor í jöfnu liði Füchse Berlin.
Sigur í Lemgo
Í gærkvöld lagði MT Melsungen liði Lemgo, 27:26, í Lemgo. Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark en Reynir Þór Stefánsson komst ekki á blað hjá Melsungen.
Hannover-Burgdorf tapaði sjöunda leiknum í röð í þýsku 1. deildinni í gærkvöld. Að þessu sinni lá liðið fyrir Flensburg á heimavelli, 35:32.
Eftir góða byrjun í febrúar undir stjórn Spánverjans Juan Pastor hefur allt hrokkið í baklás síðustu vikur hjá leikmönnum Hannover-Burgdorf. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari liðsins.
Staðan:



