Eftir fimmtán sigurleiki í röð þá tapaði franska meistaraliðið Metz báðum viðureignum sínum á úrslithelgi Meistaradeildar Evrópu í handknattelik kvenna í MVM Dome í Búdapest. Í dag lá liðið fyrir Esbjerg í leiknum um 3. sætið, 30:27, eftir að hafa verið marki undir í hálfleik, 17:16. Í undanúrslitum í gær tapaði Metz fyrir Odense Håndbold í viðureigninni um sæti í úrslitum.
Það var hörð barátta í seinni hálfleik og liðin skiptust á um að vera með yfirhöndina. Spennan jókst innan vallar sem utan þegar nær dró leikslokum. Þegar Esbjerg komst yfir, 27:25, voru leikmenn staðráðnir í að missa ekki niður þráðinn og tryggðu sér bronsverðlaunin annað árið í röð.
Franska liðið lagði allt í sölurnar, en hafði ekki erindi sem erfiði. Þegar enn nær dró leikslokum var Esbjerg liðið sem átti meira eftir og Henny Reistad leiddi enn og aftur liðið til sigurs, 30:27. Reistad var markadrottning keppninnar á tímabilnu með 154 mörk.
Tvær af fremstu handknattleikskonum Frakka síðustu 15 ár, Allison Pineau og Cléopatre Darleux, léku sinn síðasta leik í dag. Báðar hafa ákveðið að hætta í sumar.
🎤 Exclusive interview with 𝗔𝗹𝗹𝗶𝘀𝗼𝗻 𝗣𝗶𝗻𝗲𝗮𝘂: reflecting on an incredible career and her heartfelt final words to handball. A true legend’s farewell message 💙#ehfcl #ehffinal4 pic.twitter.com/SEPwgb4kos
— EHF Champions League (@ehfcl) June 1, 2025
Mörk Esbjerg: Henny Reistad 8, Michaela Møller 7, Mia Emmenegger 5, Elin Hansson 3, Mette Tranborg 2, Kaja Kamp 1, Live Rushfeldt Deila 1, Judith var der Helm 1, Nina Beate Koppang 1, Merel Freriks 1.
Varin skot: Anna Kristensen 10, 27%.
Mörk Metz: Sarah Bouktit 6, Emma Jacques 5, Lucie Granier 4, Nadine Söllösi-Schatzl 3, Tyra Axnér 2, Léna Grandveau 2, Petra Vamos 1, Anne Mette Hansen 1, Anne Emmanuelle Augustine 1, Zaliata Mlamali 1.
Varin skot: Cléopatre Darleux 11, 27,5% – Zsófi Szemerey 0.