Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar í Sporting Lissabon hafa átt annasama helgi. Þeir unnu Águas Santas/Milaneza í gær eins og áður hefur sagt frá og í dag lögðu þeir Gaia með 12 marka mun, 41:29, í viðureign sem frestað var fyrr á leiktíðinni.
Orri Freyr skoraði átta mörk fyrir Sporting í viðureigninni við Gaia sunnan megin Douro-árinnar sem skilur að Gaia og Porto. Fimm markanna skoraði Orri Freyr úr vítaköstum. Hann var markahæstur leikmanna Sporting í 22. sigurleiknum á leiktíðinni. Carlos Dominguez var næstur á eftir með sjö mörk. Costa-bræðurnir voru rólegir í leiknum. Annar þeirra skoraði þrjú mörk en hinn ekkert.
Sporting er sem fyrr með yfirburðastöðu í deildinni. Liðið hefur ekki tapað stigi fram til þessa.
Staðan:



