- Auglýsing -
- Auglýsing -

Anton Breki heldur áfram með Selfossi

Anton Breki Hjaltason handknattleiksmaður á Selfossi. Ljósmynd UMF. Selfoss
- Auglýsing -

Anton Breki Hjaltason hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Umf. Selfoss um tvö ár.

„Anton Breki er einn af uppöldu efnilegu strákunum okkar. Hann er hávaxinn rétthent skytta og var hluti af gríðar skemmtilegu U-liði Selfyssinga síðasta vetur ásamt því að fá sínar fyrstu mínútur með meistaraflokki. Þá var Anton valinn leikmaður ársins í 3. flokki í vetur, afreksmaður ársins í akademíunni ásamt því að útskrifaðist úr Handknattleiksakademíu Selfoss. Það verður spennandi að fylgjast með Antoni taka næstu skref á sínum handboltaferli í ungu og spennandi Selfossliði í Grill 66 deildinni í vetur,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Selfoss.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -