- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Arnór og Jóhannes töpuðu á útivelli

- Auglýsing -

Arnór Atlason og lærisveinar í TTH Holstebro töpuðu fyrir Mors-Thy í fyrstu umferð úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn í handknattleik karla í kvöld, 33:31. Staðan var jöfn í hálfleik, 16:16, í Thy Hallen á Jótlandi.


Jóhannes Berg Andrason skoraði tvö mörk fyrir TTH Holstebro. Emil Grønbech var markahæstur með átta mörk. Victor Norlyk skoraði sjö mörk Mors-Thy.

Úrslitakeppnin í Danmörku er leikin með öðru sniði en hér heima á Íslandi. Liðunum átta sem taka þátt er skipt niður í tvo riðla eftir lokastöðunni í deildarkeppninni. Tvö efstu lið byrja með stigaforgjöf en tvö þeirra neðri eru tómhent í upphafi.

TTH Holstebro hóf leik með tvö stig en Mors-Thy var án stiga þangað til liðið vann leikinn í kvöld.


Staðan í riðlunum:

Standings provided by Sofascore
Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -