- Auglýsing -
Tveir leikmenn íslenska landsliðsins í handknattleik, Aron Pálmarsson og Bjarki Már Elísson, greindust með covid í hraðprófi í morgun. Beðið er niðurstöðu úr PCR prófi, eftir því sem segir í tilkynningu frá Handknattleikssambandi Íslands sem var að berast.
Þrír greindust smitaðir í gær eftir PCR próf. Björgvin Páll Gústavsson, Elvar Örn Jónsson og Ólafur Andrés Guðmundsson.
Þar með eru 15 leikmenn eftir klárir í slaginn við Dani í milliriðlakeppni EM í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.30.
Fréttin verður uppfærð.
- Auglýsing -