Íslendingaliðið Blomberg-Lippe vann stórsigur, svo ekki sé dýpra í árinni tekið í kvöld, þegar liðið lagði Göppingen, 40:22, í 16. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Staðan var 17:7 eftir fyrri hálfleik.
Blomberg-Lippe er í öðru sæti deildarinnar með 28 stig, stigi á eftir Dortmund sem trónir á toppnum. Bensheim-Auerbach er í þriðja sæti, fjórum stigum á eftir Blomberg-Lippe. Göppingen situr í áttunda sæti af 11 liðum.
Díana Dögg Magnúsdóttir var markahæst íslensku landsliðskvennanna hjá Blomberg Lippe. Hún skoraði 5 mörk, gaf 3 stoðsendingar, skapaði 1 marktækifæri og vann einn ruðning.


Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði 4 mörk, gaf 2 stoðsendingar, vann 2 vítaköst og einn ruðning.
Andrea Jacobsen skoraði 2 mörk, átti 4 stoðsendingar, vann 1 vítakast og varði 1 skot í vörninni. Þar á ofan vann hún andstæðing einu sinni af leikvelli.
Önnur úrslit í þýsku 1. deildinni í kvöld:
Sport-Union Neckarsulm – VfL Oldenburg 26:26 (14:13).
Thüringer HC – Borussia Dortmund 22:33 (13:12).
Staðan:




