- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltahöllin spáir í spilin fyrir úrslitakeppni Olísdeildar karla

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld fóru sérfræðingar þáttarins, Einar Ingi Hrafnsson og Rakel Dögg Bragadóttir, ítarlega yfir úrslitakeppni Olísdeildar karla þar sem barist verður til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn. Í fyrstu umferð úrslitakeppninnar þarf aðeins tvo sigra til þess að...

Arftaki Landins er fundinn

Þýska stórveldið THW Kiel hefur samið við þýska vinstri hornamanninn Vincent Büchner um að leika með liðinu frá næsta sumri. Kemur hann frá TSHV Eisenach og mun leysa Danann Magnus Landin af hólmi. Landin gengur til liðs við danska stórveldið...

Víkingur vill hætta að vera jójó-lið: „Ekki einir með það markmið“

„Tilfinningin er mjög góð. Við erum mjög ánægðir með vegferðina sem við erum á. Strákarnir eiga mikið hrós skilið fyrir vinnusemina og eljuna sem þeir hafa lagt í verkefnið síðastliðin tvö ár,“ segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari karlaliðs Víkings Reykjavíkur,...

Handboltahöllin: Þegar Hafdís ver vinnur Valur

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var úrvalslið deildarkeppni Olísdeildar kvenna valið. Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals, var þar útnefnd besti leikmaður tímabilsins 2025/2026. Hafdís átti stórbrotið tímabil, var oft og tíðum með yfir 50% markvörslu í leik og var þegar...
- Auglýsing-

Ólafur Andrés leggur skóna á hilluna

Ólafur Andrés Guðmundsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna að yfirstandandi tímabili loknu. Sænska félagið HF Karlskrona tilkynnti nýverið að Ólafur Andrés myndi fara frá félaginu í sumar þegar samningur hans rennur út. Í samtali við Handkastið staðfesti Ólafur...

Elín Klara endaði næstmarkahæst í sænsku úrvalsdeildinni

Elín Klara Þorkelsdóttir hafnaði í öðru sæti yfir markahæstu leikmenn sænsku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu og var aðeins einu marki á eftir markahæsta leikmanninum. Elín Klara skoraði sjö mörk fyrir IK Sävehof í 32:30 tapi fyrir Skara HF í lokaumferð deildarinnar...

Jakob Martin verður lengi áfram hjá FH

Jakob Martin Ásgeirsson, leikmaður FH, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt og er nú samningsbundinn því til sumarsins 2029. Jakob Martin, sem er 27 ára vinstri hornamaður, hefur alla tíð leikið með FH og er á...

Handboltahöllin: Bjarni Ófeigur með tölfræði sem verður seint toppuð

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var úrvalslið deildarkeppni Olísdeildar karla valið. Bjarni Ófeigur Valdimarsson, vinstri skytta KA, var þar útnefndur besti leikmaður tímabilsins 2025/2026. Bjarni Ófeigur átti magnað tímabil í deildinni og var einfaldlega óstöðvandi í sóknarleik KA-manna þar...
- Auglýsing-

Hans Óttar heiðraður fyrir landsliðsferilinn

Hans Óttar Lindberg Tómasson, Daninn með íslensku foreldrana sem lék með danska landsliðinu í 22 ár, var heiðraður fyrir magnaðan landsliðsferil sinn eftir sigur Danmerkur á Bandaríkjunum í alþjóðlega mótinu Golden League í Kaupmannahöfn á laugardag. Hans Óttar, sem er...

Lykilmaður KA ekkert með í úrslitakeppninni

Giorgi Dikhaminjia, hægri hornamaður KA og georgíska landsliðsins, meiddist í leik með Georgíu gegn Ísrael í forkeppni HM 2027 í síðustu viku. Af þeim sökum er tímabili hans með KA lokið. Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, greindi frá þessu í...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -