- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Pytlick upplifir svik hjá vinnuveitendum sínum

Simon Pytlick, leikmaður SG Flensburg-Handewitt og danska landsliðsins, er óánægður með forvígismenn þýska félagsins og upplifir sig svikinn. Pytlick á að ganga til liðs við Füchse Berlín sumarið 2027 en nýjustu ummæli hans þykja renna stoðum undir það að...

Alex Máni gengur til liðs við HK

HK hefur samið við Alex Mána Oddnýjarson um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Alex Máni kemur frá Fjölni, þar sem hann hefur leikið allan sinn feril. Alex Máni er 22 ára gamall örvhentur hornamaður sem skoraði...

Sara Dögg endaði langmarkahæst í Olísdeildinni

Sara Dögg Hjaltadóttir, leikstjórnandi ÍR, bar af þegar kom að markaskorun í Olísdeildinni á tímabilinu og endaði sem markadrottning. Keppni lauk í deildinni um helgina og var landsliðskonan langsamlega markahæst með 207 mörk í 21 leik, eða rétt tæplega...

Katrín Ósk framlengir í Kaplakrika

Katrín Ósk Ástþórsdóttir, leikmaður FH, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til næstu tveggja ára, til sumarsins 2028. Katrín Ósk er tvítug og leikur í stöðu leikstjórnanda og vinstri skyttu. Hún hefur verið í stóru hlutverki hjá...
- Auglýsing-

Vonast til þess að halda samstarfinu við Alfreð áfram

Juri Knorr, ein stærsta stjarna þýska karlalandsliðsins, bindur vonir við að gott samstarf hans og landsliðsþjálfarans Alfreðs Gíslasonar haldi áfram fram yfir HM 2027 í Þýskalandi. Samningur Alfreðs rennur út að mótinu loknu. Alfreð, sem er 66 ára gamall, hefur...

Birna Ósk verður um kyrrt hjá Fram

Birna Ósk Styrmisdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt Fram sem gildir til næstu tveggja ára, út keppnistímabilið 2027/2028. Birna Ósk er aðeins 16 ára gömul en þrátt fyrir ungan aldur spilaði hún sex leiki í Olísdeildinni á...

„Ómögulegt að segja hvað verður“

Næsta verkefni íslenska karlalandsliðsins verður í maí þegar liðið mætir Egyptalandi í tveimur vináttulandsleikjum í Kaíró. Tveimur vináttulandsleikjum gegn Svíþjóð í vikunni sem er að líða lauk báðum með tapi Íslands. „Ég held að það verði gaman á móti öðru...

„Það nærir meira að vinna leiki“

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, var á því að síðari vináttulandsleikur Íslands við Svíþjóð í Kaplakrika í kvöld hafi verið áþekkur þeim fyrri á fimmtudagskvöld. Báðir leikir töpuðust, sá fyrri með tveimur mörkum og sá síðari með þremur. „Þessi...
- Auglýsing-

„Geðveikt að koma aftur í Krikann“

„Þetta er bara svekkjandi. Við töpum og það er aldrei gaman að tapa,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi Íslands, í samtali við handbolta.is eftir að liðið tapaði í annað sinn fyrir Svíþjóð í vináttulandsleik á þremur dögum, að þessu...

Myndskeið: Lygilegar lokasekúndur þegar Stjarnan bjargaði sér

Stjarnan tryggði sér í dag sjöunda sætið í Olísdeild kvenna þegar liðið krækti í dramatískt jafntefli gegn Haukum í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Lokasekúndurnar voru hreint lygilegar þar sem Inga Maria Roysdóttir jafnaði metin fjórum sekúndum fyrir leikslok með laglegu...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -