- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Selfoss bjargaði sér með jafntefli

Selfoss tryggði sér áframhaldandi veru í Olísdeild karla með jafntefli gegn Aftureldingu, 27:27, í lokaumferð deildarinnar í Set höllinni á Selfossi í kvöld. Selfoss hafnar því í tíunda sæti með 12 stig, fer ekki í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn og ekki...

Arnór stýrði Holstebro í úrslitakeppnina

Íslendingalið TTH Holstebro tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitakeppni um danska meistaratitilinn með því að leggja Bjerringbro-Silkeborg örugglega að velli, 36:32, í 24. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í Holstebro í kvöld. Arnór Atlason er þjálfari Holstebro og Jóhannes...

Einar Bragi og félagar töpuðu óvænt

IFK Kristianstad, topplið sænsku úrvalsdeildarinnar, hljóp á sig í baráttunni um deildarmeistaratitilinn þegar liðið tapaði óvænt á heimavelli fyrir OV Helsingborg, 32:33, í næstsíðustu umferð deildarinnar í kvöld. Helsingborg berst í bökkum í neðri hluta deildarinnar. Aðeins eru tveir sólarhringar...

Íslendingaliðin töpuðu í Meistaradeildinni

Íslendingalið Kolstad frá Noregi og ungverska liðið One Veszprém töpuðu heimaleikjum sínum í lokaumferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla í kvöld. Kolstad var þegar úr leik og hafnar í botnsæti riðilsins en Veszprém er komið í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar,...
- Auglýsing-

Grétar Ari ekki með vegna búferlaflutninga

Grétar Ari Guðjónsson, markvörður bikarmeistara Hauka, var fjarri góðu gamni þegar liðið vann Selfoss 35:27 í næstsíðustu umferð Olísdeildarinnar í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum á mánudagskvöld. Ástæðan fyrir fjarverunni var einföld; búferlaflutningar. Grétar Ari fluttist heim til Íslands frá Aþenu...

Dagskráin: Leikið í Grill deildum karla og kvenna

Fjöldi leikja eru á dagskrá í Grill 66 deildum karla og kvenna í kvöld. Alls fara fjórir leikir fram í 21. umferð hjá körlunum og einn í 19. umferð hjá konunum. Tvö efstu lið Grill deildar karla, Víkingur Reykjavík og...

Sigurður í bandaríska landsliðshópnum

Sigurður Jefferson Guarino, línumaður HK, er í 18 manna landsliðshópi Bandaríkjanna sem mun taka þátt í æfingamóti, NORLYS Golden League, í Kaupmannahöfn frá 19. – 22. mars. Sigurður lék sína fyrstu landsleiki fyrir Bandaríkin á þróunarmóti Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF, í Búlgaríu...

Sara Dögg er langmarkahæst í Olísdeildinni

Landsliðskonan Sara Dögg Hjaltadóttir, leikmaður ÍR, trónir ein á toppi listans yfir markahæstu leikmenn Olísdeildar kvenna þegar þrjár umferðir eru eftir. Hefur hún skorað 30 mörkum meira en næsti leikmaður á listanum, landsliðsfyrirliðinn Sandra Erlingsdóttir hjá ÍBV. Sara Dögg hefur...
- Auglýsing-

Baldur Fritz markahæstur fyrir lokaumferðina

Baldur Fritz Bjarnason, leikmaður ÍR, er sem fyrr markahæsti leikmaður Olísdeildar karla þegar einungis ein umferð er óleikin. Lokaumferðin fer fram annað kvöld þar sem Baldur Fritz verður að líkindum ekki með eftir að hann meiddist í undanúrslitum Powerade...

Viggó í liði umferðarinnar með hæstu einkunn

Viggó Kristjánsson er í úrvalsliði 24. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir stórkostlega frammistöðu sína í 36:31 sigri HC Erlangen á GWD Minden á sunnudag. Viggó skoraði 16 mörk úr 19 skotum og fékk hæstu mögulegu einkunn, 100 HPI stig, hjá...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -