- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Einar Bragi illviðráðanlegur er Kristianstad styrkti stöðuna á toppnum

Einar Bragi Aðalsteinsson átti einu sinni sem áður góðan leik fyrir topplið IFK Kristianstad þegar liðið heimsótti Hammarby IF til Stokkhólms og vann með minnsta mun, 31:30, í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Einar Bragi hefur leikið afar vel fyrir Kristianstad...

Jóhannes fór mikinn í dramatískum sigri Holstebro – endurkoma Donna

Jóhannes Berg Andrason átti einkar góðan leik fyrir TTH Holstebro þegar liðið vann kærkominn og dramatískan sigur á Mors-Thy Håndbold, 38:37, í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Sigurmark Holstebro, sem Arnór Atlason þjálfar, kom fjórum sekúndum fyrir leikslok. Jóhannes steig upp...

Grill 66 deild karla: Víkingur á toppinn – Valur 2 lagði Hörð

Víkingur Reykjavík tyllti sér á topp Grill 66 deildar karla með öruggum sigri á Selfossi 2, 39:28, í Safamýri í dag. Valur 2 fékk þá Hörð frá Ísafirði í heimsókn í N1 höllina á Hlíðarenda og vann 33:30. Víkingur er...

Hergeir framlengdi við bikarmeistarana

Hergeir Grímsson, nýkrýndur bikarmeistari með Haukum, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2028. Handkastið greinir frá. Hergeir, sem er 29 ára leikstjórnandi, er á sínu öðru tímabili með Haukum eftir að hafa leikið með Stjörnunni...
- Auglýsing-

Íslendingaliðið á toppnum eftir sigur í grannaslag

Íslendingalið Alpla Hard HC Hard vann góðan sigur á nágrönnum sínum í Bregenz Handball, 35:30, í austurrísku 1. deildinni í handknattleik karla í dag. Leikið var í Bregenz. Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Alpla Hard og gaf tvær...

Tinna Ósk áfram hjá HK

Tinna Ósk Gunnarsdóttir, leikmaður HK, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Í tilkynningu frá handknattleiksdeild HK kemur ekki fram til hve langs tíma hún samdi. Tinna Ósk verður þó að minnsta kosti áfram samningsbundin HK á næsta tímabili en...

Hagman sú þriðja í þúsund marka klúbbinn

Nathalie Hagman, hægri hornamaður sænska landsliðsins, kom sér í afar fámennan hóp í gærkvöldi þegar hún skoraði sjö mörk í 29:26 sigri Svíþjóðar á Serbíu þar í landi. Rauf Hagman þá þúsund marka múrinn með sænska landsliðinu. Hún er aðeins...

Wille fannst fjögur ár ekki nægur tími

Jonas Wille, fráfarandi þjálfari norska karlalandsliðsins, viðurkennir fúslega að hann hefði viljað halda starfi sínu áfram. Norska handknattleikssambandið tilkynnti í gær að samningur Wille sem rennur út í sumar verði ekki endurnýjaður. „Ég gerði öllum það morgunljóst að ég vildi...
- Auglýsing-

Einar Rafn yfirgefur KA

Einar Rafn Eiðsson, spilandi aðstoðarþjálfari KA, mun yfirgefa félagið í sumar þegar hann flytur búferlum á höfuðborgarsvæðið ásamt fjölskyldu sinni. Einar Rafn greindi frá þessu í samtali við Handkastið, sem greinir frá því að bæði Haukar og FH séu...

Arnór vann í Íslendingaslag – góð frammistaða Arnars dugði ekki til

Arnór Viðarsson og liðsfélagar hans í HF Karlskrona unnu góðan heimasigur á Hammarby IF, hvar Gunnar Steinn Jónsson er í þjálfarateyminu, í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Arnar Birkir Hálfdánsson átti þá góðan leik fyrir Amo HK er liðið tapaði...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -