- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Nítján þjóðir þegar komnar á HM 2027 – óvíst hvar Ísland leikur

Alls hafa 19 þjóðir af 32 tryggt sér sæti á heimsmeistaramóti karla sem fer fram í Þýskalandi eftir tæpt ár. Þjóðirnar sem höfnuðu í sex efstu sætum nýafstaðins Evrópumóts hafa allar tryggt sér farseðilinn á HM 2027, þeirra á...

„Svolítið klikkað að hugsa til þess“

Thomas Arnoldsen er nú einn fjölda danskra landsliðsmanna sem hafa unnið Evrópumeistaratitilinn, heimsmeistaratitilinn og ólympíumeistaratitilinn með liðinu, hvern á eftir öðrum. Arnoldsen sker sig hins vegar úr. Hann hefur nefnilega ekki enn tapað leik með danska A-landsliðinu í 32 leikjum....

Viktor Gísli og Óðinn á meðal efstu manna

Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson skipar sér í sess bestu markvarða Evrópumótsins í Danmörku, Svíþjóð og Noregi ef litið er til fjölda varðra skota. Óðinn Þór Ríkharðsson er þá sá leikmaður sem lék næstflestar mínútur á öllu mótinu. Í tölfræðisamantekt Handknattleikssambands...

Björgvin Páll: „Allt þetta hjá EHF er hneyksli og það vita allir“

Luka Cindric, fyrirliði bronsverðlaunahafa Króatíu á Evrópumótinu, og Björgvin Páll Gústavsson markvörður Íslands taka heilshugar undir gagnrýni Dags Sigurðssonar í garð Handknattleikssambands Evrópu, EHF, vegna skipulags mótshaldara. „Ég styð hann og allir í liðinu okkar gera það sömuleiðis. Ég hef...
- Auglýsing-

Ómar Ingi jafnaði við íslenska Danann

Ómar Ingi Magnússon jafnaði met yfir fjölda skoraðra marka í bronsleik Evrópumóts karla þegar hann skoraði tólf mörk í 33:34 tapi Íslands fyrir Króatíu á EM 2026 í gær. Íslenski Daninn Hans Óttar Lindberg Tómasson skoraði sömuleiðis tólf mörk fyrir...

Tvær framlengja við Aftureldingu

Handknattleiksdeild Aftureldingar hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga. Í gær var tilkynnt að Katrín Erla Kjartansdóttir hafi framlengt samning sinn til næstu tveggja ára og í morgun var tilkynnt að Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir hafi gert slíkt hið...

Gísli stoðsendingahæstur á EM – fimm á lista yfir þá markahæstu

Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki valinn besti leikstjórnandi Evrópumótsins í Danmörku, Svíþjóð og Noregi að ósekju, enda fór það svo að hann var stoðsendingahæsti leikmaður mótsins. Gísli Þorgeir, sem var valinn í úrvalslið EM sem leikstjórnandi fyrir bronsleikinn gegn Króatíu...

Hvalreki á fjörur ÍBV – Andrea semur til tveggja ára

Andrea Jacobsen, landsliðskona í handknattleik, hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV og gengur til liðs við félagið frá þýska félaginu Blomberg-Lippe í sumar. Andrea, sem er 27 ára vinstri skytta, hefur leikið sem atvinnumaður í Þýskalandi og Danmörku...
- Auglýsing-

Hjartsláttartruflanir en ekki höfuðmeiðsli hjá Hald

Danska varnartröllið Simon Hald hefur opinberað að hjartsláttartruflanir hafi valdið því að hann þurfti að fara af velli snemma í síðari hálfleik í undanúrslitum Evrópumótsins gegn Íslandi í Herning en ekki höfuðmeiðsli eins og danskir fréttamiðlar höfðu greint frá...

Alfreð furðaði sig á dómgæslunni

Alfreð Gíslason, þjálfari Þýskalands, sýtti sérstaklega fjarveru tveggja sterkra varnarmanna eftir tap liðsins fyrir Danmörku, 34:27, í úrslitaleik Evrópumóts karla í Herning í Danmörku í gær. Þá undraði hann sig á notkun dómara leiksins á myndbandsdómgæslu. Justus Fischer, mjög sterkur...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -