- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Tímabilinu er lokið hjá Ölfu Brá

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, landsliðskona og leikmaður Fram, tekur ekki þátt í fleiri leikjum á keppnistímabilinu vegna meiðsla. Þetta staðfesti hún við handbolta.is í dag. Að læknisráði hefur henni verið gert að taka sér þriggja til fjögurra mánaða frí...

Textalýsing: Ísland – Svartfjallaland, kl. 18

Landslið Íslands og Svartfjallalands mætast í 3. umferð undankeppni EM kvenna í handknattleik í Kuehne+Nagel-höllin á Ásvöllum klukkan 18. Handbolti.is fylgist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

Möguleikarnir eru klárlega fyrir hendi

„Við getum bætt margt frá síðasta leik okkar við Svartfellinga sem er jákvætt. Möguleikarnir eru klárlega fyrir hendi og ljóst að það væri frábært ef okkur tækist að stríða þeim á heimavelli,“ segir Sandra Erlingsdóttir fyrirliði kvennalandsliðsins í handknattleik...

Myndskeið: Einar Bragi skoraði beint úr aukakasti

Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði glæsilegt mark beint úr aukakasti þegar leiktími fyrri hálfleiks var á enda runninn í viðureign IFK Kristianstad og MT Melsungen í Evrópudeildinni í handknattleik karla í gærkvöld. Með markinu jafnaði Einar Bragi metin, 16:16,...
- Auglýsing-

Viljum svara fyrir síðasta leik við Svartfellinga

„Við töpuðum með of miklum mun fyrir Svartfellingum á HM og þess vegna erum við staðráðnar í að mæta í leikinn af krafti og svara fyrir síðustu viðureign,“ sagði Katrín Tinna Jensdóttir landsliðskona í handknattleik sem leikur sinn 35....

Komin í gott spilform og hlakkar til leikjanna

„Ég er komin í gott spilform aftur að loknum mörgum leikjum með Blomberg-Lippe frá áramótum,“ sagði Andrea Jacobsen landsliðskona sem er mætt til leiks með landsliðinu en hún var því miður ekki með á HM í nóvember og í...

Ætlum að keyra upp hraðann og fá eitthvað út úr leiknum

„Við ætlum að njóta þess að vera á heimavelli og mæta af fullum krafti. Okkar markmið verður að keyra upp hraðann og fá eitthvað út þessu góðan leik,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik spurður um viðureignina við...

Wille verður að taka pokann sinn hjá norska landsliðinu

Ekki stendur til hjá norska handknattleikssambandinu að endurnýja starfssamning sinn við Jonas Wille sem þjálfað hefur karlalandsliðið undanfarin fjögur ár. Samningur Wille rennur út 1. júlí. Frá þessu greinir norska handknattleikssambandið í tilkynningu í dag. Nokkur óánægja hefur verið með...
- Auglýsing-

Seinni leiknum hefur einnig verið slegið á frest

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur ákveðið að slá á frest viðureign Grikklands og Ísraels í undankeppni EM kvenna sem til stóð að háð yrði í Grikklandi á sunnudaginn. Á mánudaginn var leik þjóðanna sem átti að fara í Ísrael í...

Elín Klara í úrvalsliðinu annan mánuðinn í röð

Annan mánuðinn í röð er Elín Klara Þorkelsdóttir, landsliðskona og leikmaður sænsku deildarmeistaranna IK Sävehof, í úrvalsliði mánaðarins. Í morgun var febrúarmánuður úrvalsdeildarinnar gerður upp og er Elín Klara í úrvalsliði mánaðarins. Hún var einnig í úrvalsliðinu fyrir janúar...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18877 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -