Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Landsliðskonurnar hrepptu bronsið eftir baráttuleik

Blomberg-Lippe með landsliðskonurnar Andreu Jacobsen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttir í fremstu víglínu, vann bronsverðlaunin í þýsku bikarkeppninni í handknattleik í dag. Blomberg-Lippe lagði Thüringer HC, 29:27, í úrslitaleik um bronsið í Porsche Arena í dag. Staðan var...

Molakaffi: Þorsteinn, Orri, Monsi, Óðinn, Ólafur

Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði þrjú mörk í öruggum sigri FC Porto á Avanca Bioria, 41:30, á útivelli í síðasta leik efstu deildar portúgölsku handknattleiksdeildarinnar í gærkvöld. FC Porto hafnaði í öðru sæti með 59 stig í 22 leikjum. Benfica...

Kærkominn sigur hjá Rúnari

Rúnar Sigtryggsson þjálfari HSG Wetzlar fagnaði langþráðum sigri í kvöld er liðið sótti heim og lagði GWD Minden, 33:31, í hörkuleik. Lærisveinar Rúnars fóru hamförum í síðari hálfleik er þeir sneru leiknum sér í hag eftir að hafa verið...

Donni og félagar halda fast í annað sætið

Kristján Örn Kristjánsson og samherjar í Skanderborg AGF halda áfram fast í annað sæti dönsku úrvalsdeildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir óleiknar. Skanderborg gerði jafntefli við GOG, 28:28, í Svenborg í dag. Þar með er áfram eins stigs munur...
- Auglýsing-

Bronsleikur bíður Íslendinga í Stuttgart

Íslendingaliðið Blomberg-Lippe leikur um bronsverðlaunin í þýsku bikarkeppninni á morgun eftir þriggja marka tap fyrir Borussia Dortmund, 35:32, í undanúrslitaleik í Porsche Arena í Stuttgart í kvöld. Blomberg-Lippe lék til úrslita í bikarkeppninni en tapaði þá fyrir Ludwigsburg sem...

Lena Margrét leikur til úrslita í bikarnum

Lena Margrét Valdimarsdóttir leikur til úrslita í sænsku bikarkeppninni á morgun með stöllum sínum í Skara HF eftir nauman sigur á Höörs HK H 65 í undanúrslitaleik í dag, 32:31. Skara mætir Boden Handboll IF í úrslitaleiknum. Boden vann...

Víkingur deildarmeistari og færist upp í Olísdeild

Víkingur varð í dag deildarmeistari í Grill 66-deild karla og leikur þar með að öllu forfallalausu í Olísdeildinni á næstu leiktíð. Víkingar lögðu Hauka 2 í hörkuleik á Ásvöllum, 36:34, eftir að hafa verið yfir, 20:18, þegar fyrri hálfleikur...

Selfoss vann botnslaginn – Valur deildarmeistari

Selfoss lagði Stjörnuna, 35:33, í uppgjöri tveggja neðstu liða Olísdeildar kvenna í Sethöllinni á Selfossi í dag í þriðja síðasta leik tímabilsins í deildinni hjá báðum liðum. Með sigrinum höfðu liðin tvö sætaskipti í kjallaranum. Selfoss er nú næst...
- Auglýsing-

Elmar fór meiddur af velli – segulómskoðun á mánudag

Elmar Erlingsson handknattleiksmaður hjá Nordhorn-Lingen fékk þungt högg á vinstri síðuna undir lok fyrri hálfleiks viðureignar liðsins við Vfl Potsdam í næstefstu deild þýska handknattleiksins í gærkvöld. Kom hann ekkert meira við sögu í leiknum. Við skoðun hjá lækni...

Dagskráin: Þráðurinn tekinn upp eftir þriggja vikna hlé

Eftir þriggja vikna hlé á keppni í Olísdeild kvenna verður þráðurinn tekinn upp í dag með fjórum viðureignum í 19. og þriðju síðustu umferð.Olísdeild kvenna, 19. umferð:Kuehne+Nagel höllin: Haukar - ÍBV, kl. 13.Sethöllin: Selfoss - Stjarnan, kl. 14.N1-höllin: Valur...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18963 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -