- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Eyjamenn voru skrefi á undan frá upphafi til enda

ÍBV færðist upp í hóp með Haukum og Val í annað til fjórða sæti Olísdeildar karla í handknattleik í dag með öruggum sigri á Þór, 30:24, í íþróttamiðstöðinni í Vestamannaeyjum. ÍBV hefur þar með sex stig að loknum fjórum...

Sex marka tap í Aþenu í fyrsta Evrópuleiknum

Kvennalið Selfoss tapaði með sex marka mun, 32:26, fyrir gríska liðinu AEK Aþenu í fyrri viðureign liðanna í 2. umferð Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í Aþenu í dag. Liðin mætast öðru sinni í Sethöllinni á Selfossi á sunnudaginn eftir...

Rut Arnfjörð leikur ekki fleiri leiki á tímabilinu

Rut Arnfjörð Jónsdóttir leikur ekki fleiri leiki með Haukum á keppnistímabilinu. Rut er ólétt en það kom fram í viðtali við Díönu Guðjónsdóttur annan þjálfara Hauka í sjónvarpi Símans í dag áður en viðureign Hauka og Fram hófst á...

Jóhanna Margrét jafnaði metin á síðustu sekúndum

Haukar skoruðu tvö síðustu mörk leiksins við Fram á Ásvöllum í dag og náðu þar með öðru stigi úr viðureign liðanna í þriðju umferð Olísdeildar kvenna, 27:27. Jóhanna Margrét Sigurðarsdóttir skoraði jöfnunarmarkið þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka. Nokkrum...
- Auglýsing-

Leik Vals og JuRo Unirek  verður streymt

Leikur Vals og hollenska meistaraliðsins í JuRo Unirek í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar kvenna í handknattleik í Hollandi klukkan 17 í dag verður sendur út á netinu. Hér fyrir neðan er slóð á útsendinguna: https://dash.usf.sport/matches/83896cf0-ed5b-4999-b6e8-b7fdb10571d6?fbclid=IwY2xjawNEnFpleHRuA2FlbQIxMABicmlkETFGek9oRE1mZlJudmNCWjB6AR50_O5MB_pKlHU_8puSbeoQsz4D0BDjyCIvmDfXXlxXcCAIy_6o40OFP4aaIQ_aem_db32l7V-2kXOGZOPzl8dRA Eftir því sem næst verður komist þarf...

Beint: Sydney Uni -Veszprém HC, kl. 17

Hér fyrir neðan er hlekkur á streymi frá viðureign Syndey Uni og One Veszprém í fyrstu umferð heimsmeistaramóts félagsliða í handknattleik karla. Leikurinn fer fram í Kaíró og hefst klukkan 17. Bjarki Már Elísson leikur með One Veszprém. https://www.youtube.com/watch?v=zo14qe97Z20

Grill 66 karla: Hörður og Selfoss unnu sína leiki

Hörður frá Ísafirði lagði Hvíta riddarann, 29:22, í Myntkaupshöllinni að Varmá í Mosfellsbæ í dag. Harðarmenn fóru þar með upp að hlið Vals 2 og Hvítu riddaranna í fimmta til sjöunda sæti Grill 66-deildar. Hvert lið hefur fjögur stig. Staðan...

Donni hafði betur gegn Elvari – tap hjá Ringsted-félögum

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar í Skanderborg unnu Ribe-Esbjerg, 34:30, í viðureign liðanna í 5. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag. Leikið var í Esbjerg. Donni skoraði sjö mörk í 12 skotum og var næst markahæstur. Hann...
- Auglýsing-

Beint: Handebol Taubaté – FC Barcelona, kl. 14.45

Hér fyrir neðan er hlekkur á streymi frá viðureign Handebol Taubaté frá Brasilíu og Barcelona í fyrstu umferð heimsmeistaramóts félagsliða í handknattleik karla. Leikurinn fer fram í Kaíró og hefst klukkan 14.45. Viktor Gísli Hallgrímsson er markvörður Barcelona. https://www.youtube.com/watch?v=PnWS3I1J0Yo

Himinn og haf skildi liðin að – 30 marka sigur

Evrópumeistarar SC Magdeburg unnu Ameríkumeistarar California Eagles með 30 marka mun í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramóti félagsliða í Kaíró í Egyptalandi í dag, 50:22. Staðan var 28:10 að loknum fyrri hálfleik. Ameríkumeistararnir voru engin fyrirstaða fyrir Evrópumeistarana, eins...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18236 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -