- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Forkeppni Evrópudeildar: Úrslit helgarinnar

Forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik lauk í gær. Þar með liggur fyrir hvaða lið taka sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar til viðbótar þeirra sem komust hjá undankeppni. Nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í leikjunum helginar auk leikmanna Stjörnunnar sem því miður...

Aldís og Lena í átta liða úrslit – Góð staða hjá Arnari Birki

Sænska meistaraliðið Skara HF komst örugglega í átta liða úrslit sænsku bikarkeppninnar í handknattleik kvenna í gær. Skara vann Lugi örugglega, 38:27, á heimavelli. Samanlagður sigur í tveimur viðureignum, 73:48. Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði þrjú af mörkum Skara HF á...

Íslendingar voru í sigurliðum í Noregi

Þrír Íslendingar komu við sögu hjá Kolstad í gær þegar liðið vann Fjellhammer, 29:23, á heimavelli í annarri umferð norsku úrvalsdeildarinnar í gær. Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði þrjú af mörkum Kolstad og gaf þrjár stoðsendingar. Sigvaldi Björn Guðjónsson, fyrirliði Kolstad,...

Molakaffi: Firnhaber, langur listi, framfarir, Dissinger, Desbonnet

Sebastian Firnhaber leikmaður HC Erlangen leikur ekki með liðinu á næstunni. Hann meiddist á hné í viðureign við Bergischer HC í liðinni viku. Firnhaber er nýlega mættur til leiks aftur eftir 20 mánaða fjarveru vegna krossbandaslits. Ekki er enn...
- Auglýsing-

Grill 66-deild kvenna – úrslit og markaskorarar

Þrír leikir fóru fram í Grill 66-deild kvenna í dag. Grótta sótti Aftureldingu heim og skoraði tvö síðustu mörk leiksins og tryggði sér jafntefli. Ída Margrét Stefánsdóttir skoraði jöfnunarmark Gróttu 13 sekúndum fyrir leikslok. Áður hafði Katrín Arna Andradóttir...

Einar Þorsteinn hafði betur gegn Hauki

Einar Þorsteinn Ólafsson og liðsfélagar hans í HSV Hamburg höfðu betur gegn Hauki Þrastarsyni og leikmönnum Rhein-Neckar Löwen í Sporthalle Hamburg í dag þegar liðin mættust í þýsku 1. deildinni í handknattleik, 33:30. Þetta var fyrsta tap Rhein-Neckar Löwen...

Donni og félagar í Evrópudeildina – verða í riðli með Baia Mare

Kristján Örn Kristjánsson, Donni og liðsfélagar í danska úrvalsdeildarliðinu Skanderborg unnu Maritimo á Madeira í dag, 36:31, í síðari leik liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik karla. Skanderborg tekur þar með sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og mætir m.a. rúmenska...

Nýliðarnir stimpluðu sig inn í deildina með sigri

Nýliðar KA/Þórs hófu leiktíðina í Olísdeild kvenna með tveggja marka sigri á Stjörnunni í kaflaskiptum leik í KA-heimilinu í dag, 24:22. KA/Þór var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 13:9, og náði mest sex marka forskoti í síðari hálfleik, 22:16. Stjarnan...
- Auglýsing-

Fyrsti sigurinn hjá Arnari Frey – tap hjá Leipzig og Gummersbach

Arnar Freyr Arnarsson og liðsfélagar í MT Melsungen unnu í dag sinn fyrsta leik á keppnistímabilinu í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Melsungen vann baráttusigur á Eisenach, 29:27, þegar leikið var í Werner-Assmann Halle í Eisenach eftir að hafa...

Fyrsta vítakeppnin sem tapast í Evrópukeppni félagsliða

Þegar Stjarnan tók þátt í vítakeppni í gær svo leiða mætti til lykta viðureignina við CS Minaur Baia Mare í forkeppni Evrópudeildar í Hekluhöllinni var liðið nærri hálft annað ár frá eftirminnilegri vítakeppni Valsmanna gegn Olympiakos í síðari úrslitaleik...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18206 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -