- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sveinn verður frá keppni í hálft ár

Keppnistímabilinu er lokið hjá handknattleiksmanninum Sveini Jóhannssyni hjá danska úrvalsdeildarliðinu SønderjyskE. Meiðsli þau sem Sveinn varð fyrir á landsliðsæfingu hér heima skömmu fyrir Evrópumeistaramótið eru svo alvarleg að hann verður frá keppni í hálft ár. Sveinn staðfesti þetta við handbolta.is...

Myndskeið: Snúningsbolti Sigvalda þriðja flottasta mark EM

Eitt markanna sem Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði gegn Portúgal í upphafsleik Íslands á Evrópumeistaramótinu í handknattleik hefur verið valið það þriðja besta Evrópumótinu sem lauk á dögunum. Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur tekið saman myndskeið með tíu flottustu mörkum Evrópumótsins. Má...

Sóknarleikurinn var á pari – íslenska liðið fékk á sig færri mörk

Íslenska landsliðið skoraði 28,7 mörk að jafnaði í leik á Evrópumeistaramótinu í handknattleik sem er nýlokið í Ungverjalandi og Slóavíku. Það er á pari við meðaltal landsliðsins á síðustu Evrópumótum en það tók nú þátt í 12. skipti í...

Líflegt í félagaskiptum: Garðar í ÍBV, Andri í Gróttu, Daníel í FH og Logi til Eyja

Línumaðurinn þrautreyndi, Garðar Benedikt Sigurjónsson, hefur heldur betur söðlað um og gengið til liðs við ÍBV en hann var síðast í herbúðum Vængja Júpíters í Grill66-deildinni. Garðar, sem lék lengi með Fram og síðar Stjörnunni, hefur lítið komið við...
- Auglýsing-

Lilja fetar í strax í fótspor systur sinnar

Lilja Ágústsdóttir hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Lugi HF og heldur utan á morgun. Fetar hún þar með í fótspor systur sinnar, Ásdísar Þóru, sem samdi við Lugi snemma á síðasta ári. „Lilja æfði...

Förum fljótlega yfir stöðuna með Guðmundi

Guðmundur B. Ólafsson, formaður Handknattleikssambands Íslands, segir að á næstunni muni stjórn HSÍ funda með Guðmundi Þórði Guðmundssyni landsliðsþjálfara. „Við förum fljótlega yfir stöðuna með honum, Evrópumótið sem er að baki og horfum til framtíðar um leið,“ sagði Guðmundur...

Sonur Palicka fær peysu áritaða frá Landin

Danska handknattleikssambandið hefur sent Aston, syni Andreas Palicka markverði Evrópumeistara Svíþjóð, markvarðapeysu danska landsliðsins áritaða af Niklas Landin markverði danska landsliðsins. Óhætt er að segja að Danir hafi tekið drenginn á orðinu. Fantastisk interview 😂🙏 Aston, der er en...

Myndskeið: Landin er betri en pabbi

Aston, sonur Andreas Palicka markvarðar Evrópumeistara Svía í handknattleik karla, hefur slegið í gegn eftir að hann stríddi föður sínum í samtali við sænska sjónvarpsstöð þegar faðir hans kom heim sem nýkrýndur Evrópumeistari í gær. Aston sagði danska landsliðsmarkvörðinn Niklas...
- Auglýsing-

Molakaffi: Aron, Andrea, Axel, Davíð, Stefán, Roberts, Hald

Landslið Barein, undir stjórn Arons Kristjánssonar, hlaut silfurverðlaun á Asíumótinu í handknattleik karla Sádi Arabíu í gær. Barein tapaði fyrir Katar, 29:24, í úrslitaleik. Sádi Arabar unnu Írana, 26:23, í leiknum um þriðja sætið. Landsliðin fjögur taka þátt í...

Kórdrengir fóru tómhentir frá Ásvöllum

Ungmennalið Hauka vann nauman sigur á liði Kródrengja, 30:28, í viðureign liðanna í Grill66-deild karla í handknattleik á Ásvöllum í kvöld. Haukar voru tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 14:12. Með sigrinum færðust Haukar upp að hlið ungmennaliðs...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18899 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -