- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Bjarki Már dreif Lemgo áfram

Bjarki Már Elísson var einu sinni sem oftar markahæstur hjá Lemgo í kvöld þegar liðið vann Medvedi frá Rússlandi, 30:27, í fimmtu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik. Leikið var í Lemgo. Bjarki Már skoraði sjö mörk í níu skotum....

Verður Bjarki Már eða Ómar Ingi leikmaður mánaðarins?

Landsliðsmennirnir Bjarki Már Elísson hjá Lemgo og Ómar Ingi Magnússon hjá SC Magdeburg er meðal þeirra sem hægt er að kjósa um í vali á leikmanni nóvembermánaðar í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Báðir fór þeir á kostum með...

ÍBV á leikmann á HM – leika ekki fleiri leiki á árinu

Serbneska handknattleikskonan hjá ÍBV, Marija Jovanovic, var valin í serbneska landsliðið sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu á Spáni en mótið verður sett á morgun. Af þeim sökum leikur ÍBV vart fleiri leiki í Olísdeildinni fyrr en eftir áramót. Jovanovic gekk...

Neikvætt hraðpróf og 500 manns á Hafnarfjarðarslag

FH-ingar ætla að opna Kaplakrika á morgun, miðvikudag, fyrir allt að 500 áhorfendur þegar Hafnarfjarðarslagur FH og Hauka í Olísdeild karla fer fram. Skilyrði fyrir aðgangi þeirra sem fæddir eru 2015 og fyrr er a.m.k. 48 klukkustunda gamalt neikvætt...
- Auglýsing-

„Kablouti er mikill fengur fyrir okkur“

„Hamza hefur leikið með okkur fjóra hálfleika og verið algjörlega frábær í þremum,“ sagði Jón Gunnlaugur Viggósson, þjálfari karlaliðs Víkings, spurður um fransk/túníska handknattleiksmanninn Hamza Kablouti sem Víkingur fékk að láni frá Aftureldingu á dögunum. Kablouti hefur skorað 16 mörk...

Myndskeið: Allt fór í bál og brand

Allt fór í bál og brand á milli leikmanna Vrbas og Kolubara í serbnesku 2. deildinni í handknattleik á dögunum eftir að til stympinga kom á milli tveggja leikmanna liðanna í kappleik. Fór svo að öllum leikmönnum liðanna laust...

Dagskráin: Ungmenni frá Selfossi mæta í Austurberg

Einn leikur er á dagskrá Íslandsmótsins í handknattleik karla í kvöld. Ungmennalið Selfoss sækir ÍR-inga heim í Austurberg klukkan 20.15 í Grill66-deild karla. Viðureignin er úr fjórðu umferð en henni varð að fresta á sínum tíma þegar kórónuveira herjaði...

Molakaffi: Aðalsteinn, Bjarki Már, Aron Dagur, Daníel Freyr, norska landsliðið

Aðalsteinn Eyjólfsson hefur skrifað undir nýjan samning við svissneska handknattleiksliðið Kadetten Schaffhausen. Nýi samingurinn gildir fram á mitt árið 2023 en fyrri samningur var með gildistíma til loka júní á næsta ári. Kadetten varð bikarmeistari í Sviss á síðasta...
- Auglýsing-

Neyðarkall frá Litáen – óvissa um þátttöku á EM í janúar

Þátttaka landsliðs Litáen á Evrópumeistaramótinu í handknattleik karla í janúar er í mikilli óvissu um þessar mundir. Segja má að velunnarar landsliðsins hafi sent út neyðarkall af þessu tilefni. Fjárhagur handknattleikssambands landsins stendur á slíkum brauðfótum að svo kann...

Við vildum þetta meira

„Við vildum þetta meira,“ sagði Jón Gunnlaugur Viggósson, þjálfari Víkinga í samtali við handbolta.is í kvöld eftir fjögurra marka sigur liðsins á HK, 26:22, í Olísdeild karla í handknattleik í Víkinni í kvöld. „Það var mikilvægt að komast yfir undir...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18854 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -