- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Kaflaskil hjá Hildi – tveggja ára samningur við Víking

Handknattleiksdeild Víkings hefur samið við vinstri skyttuna Hildi Guðjónsdóttur til tveggja ára. Hún kemur til félagsins frá FH. Hildur hefur verið ein burðarása FH-liðsins undanfarin ár og var m.a. valin handknattleikskona félagsins í árslok 2023. Á síðasta keppnistímabili var...

Annar leikmaður Hauka gengur til liðs við Fjölni

Handknattleikskonan Rósa Kristín Kemp hefur ákveðið að ganga til liðs við Fjölni sem leikur í Grill 66-deildinni. Rósa Kristín kemur til félagsins frá Haukum. Hún fylgir þar með í kjölfar Berglindar Benediktsdóttur sem kvaddi Hafnarfjarðarliðið á dögunum og skrifaði...

Ellefu Íslendingar í Meistaradeildinni – dregið hefur verið í riðla

Dregið var í riðla Meistaradeildar karla í handknattleik í gær. Nöfn sextán liða frá ellefu þjóðum voru í skálunum sem dregið var úr. Nýkrýndir Evrópumeistarar SC Magdeburg fengu sæti í B-riðli meðal annars með Barcelona en liðin mættust í...

Færeyingar töpuðu eftir tvær framlengingar – leika um brons á HM við Svía

Færeyingar leika um bronsverðlaun á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða karla í handknattleik á sunnudaginn gegn Svíum. Aldrei hefur svo fámenn þjóð leikið um verðlaun á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða í handknattleik karla. Danmörk og Portúgal leik um gullverðlaunin. Portúgal...
- Auglýsing-

Beint: Færeyjar – Portúgal – undanúrslit HM21, kl. 19

Landslið Færeyja og Portúgal mætast í undanúrslitum heimsmeistaramóts 21 árs landsliða í Sosnowiec í Póllandi klukkan 19. Hér fyrir neðan er hægt að horfa á streymi frá viðureigninni. https://www.youtube.com/watch?v=JQdPQ-lI5-Y

Eftir sitja vonbrigði að hafa ekki náð inn í hóp sextán efstu

„Við vorum orðnir svolítið bensínlausir í dag og bara alls ekki nógu góðir. Því fór sem fór,“ sagði Einar Andri Einarsson annar þjálfara U21 árs landsliðsins í handknattleik karla þegar handbolti.is sló á þráðinn til hans eftir þriggja marka...

Þrjú lið frá úrslitahelginni drógust saman í riðil

Dregið var í dag í riðla Meistaradeildar kvenna í handknattleik fyrir næsta keppnistímabil. Flautað verður til leiks í deildinni 6. september. Györi frá Ungverjalandi vann keppnina í vor. Liðið leikur í A-riðli er m.a. með Esbjerg og Metz sem...

Forsetabikarinn til Serbíu – þriggja marka tap í lokaleiknum

Íslenska landsliðið tapaði fyrir Serbum, 38:35, í viðureigninni um 17. sæti og forsetabikarinn á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða karla í Póllandi í dag. Staðan var jöfn, 18:18, að loknum fyrri hálfleik. Íslenska landsliðið hafnaði í 18. sæti af 32 liðum...
- Auglýsing-

Beint: Ísland – Serbía, kl. 14.15

Hér fyrir neðan er hlekkur á streymi frá viðureign Íslands og Serbíu um 17. sæti á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða í Katowice í Póllandi. Sigurliðið hreppir forsetabikarinn. https://www.youtube.com/watch?v=t9pYYgraKjY

Norskur markvörður hefur samið við ÍBV

Amalie Frøland, 27 ára norskur markvörður, hefur samið við ÍBV um að verja mark liðsins á næsta keppnistímabili í Olísdeildinni og í Poweradebikarnum. Hún kemur til Vestmannaeyja frá sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad HK sem mætti Val í Evrópubikarkeppninni í nóvember...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
17793 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -