- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Andrés og Örn Ingi stýra Aftureldingu í sameiningu

Örn Ingi Bjarkason og Andrés Gunnlaugsson hafa verið ráðnir þjálfarar kvennaliðs Aftureldingar til næstu tveggja ára. Þeir taka við þjálfun liðsins af Jóni Brynjari Björnssyni sem sagði starfi sínu lausu í síðasta mánuði vegna flutninga til Svíþjóðar. Afturelding staðfesti...

Öruggur sigur í fyrsta æfingaleiknum

Afturelding vann Fjölni í sínum fyrsta æfingaleik fyrir komandi keppnistímabil í Grill 66-deild kvenna. Leikið var að Varmá. Lokatölur, 27:21, fyrir Aftureldingarliðið. „Gaman að sjá róteringuna á liðinu og nýju leikmennina í rauðu treyjunni. Stelpurnar taka þátt á Ragnarsmótinu á...

KA hafði betur í fyrsta Akureyrarslag tímabilsins

KA átti víst ekki í teljandi vandræðum með Þór í fyrri viðureign liðanna í KG Sendibílamótinu í handknattleik karla í KA-heimilinu í kvöld. Akureyri.net greinir frá að leikurinn hafi endað með sex marka sigri KA manna, 29:23. Þeir voru...

Léttur fyrsti leikur hjá Elínu Klöru í Svíþjóð

Elín Klara Þorkelsdóttir og nýir liðsfélagar hennar í IK Sävehöf unnu BK Heid í fyrstu umferð 2. riðils sænsku bikarkeppninnar í kvöld, 41:27, þegar leikið var á heimavelli Heid. Að vanda hefja Svíar keppnistímabilið snemma með riðlakeppni bikarkeppninnar. Elín Klara...
- Auglýsing-

HM19-’25: Kljást við Ungverja á morgun

Ungverjar verða andstæðingar Íslendinga í krossspili um sæti 5 til 8 á heimsmeistaramóti 19 ára landsliða karla í handknattleik á morgun. Flautað verður til leiks klukkan 16.30. Ungverjar töpuðu fyrir Þýskalandi síðdegis, 32:31. Þjóðverjar mæta Dönum í undanúrslitum á...

Verður Andrés næsti þjálfari Aftureldingar?

Hinn þrautreyndi handknattleiksþjálfari Andrés Gunnlaugsson virðist hafa bæst í þjálfarateymi kvennaliðs Aftureldingar í handknattleik. Andrés var á hliðarlínunni hjá Aftureldingu síðdegis í dag þegar Aftureldingarliðið mætti Fjölni í æfingaleik að Varmá og virðist þess albúinn að starfa við hlið...

Gaf Aftureldingu upp á bátinn – komin til Hauka

Saga Sif Gísladóttir verður ekki markvörður Aftureldingar í Grill 66-deildinni á komandi leiktíð. Hún staðfesti við Handkastið að hafa rift samningi sínum við Mosfellinga í sumar eftir tveggja ára veru hjá félaginu. Saga Sif samdi við Aftureldingu til þriggja...

HM19-’25: Náðu ekki í undanúrslit – tap fyrir Dönum

Íslenska landsliðið tapaði fyrir danska landsliðinu með tveggja marka mun, 32:30, í 8-liða úrslitum heimsmeistaramóts 19 ára landsliða karla í handknattleik í Kaíró í dag. Leikur íslenska liðsins var afar kaflaskiptur, því miður. Fyrri hálfleikur frábær en síðari hálfleikur...
- Auglýsing-

Beint – Ísland – Danmörk, kl. 14

Landslið Íslands og Danmerkur mætast í 8-liða úrslitum heimsmeistaramóts 19 ára landsliða karla í Kaíró í Egyptalandi klukkan 14. Hér fyrir neðan er streymi frá leiknum. https://www.youtube.com/watch?v=rDP_5Z_K07Y

Valur og Haukar mætast í meistarakeppninni 30. ágúst

Íslandsmeistarar Vals og bikarmeistarar Hauka mætast í meistarakeppni HSÍ í N1-höllinni á Hlíðarenda laugardagnn 30. ágúst. Til stendur að flautað verði til leiks klukkan 16 og til stendur að senda leikinn út á Handboltapassanum. Meistarakeppni HSÍ markar alla jafna upphaf...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. [email protected]
18384 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -