- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Svavar og Sigurður dæma í Malmö – eftirlitsmenn til Danmerkur og Noregs

Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæma fyrri viðureign sænsku liðanna HK Malmö og IK Sävehof í forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik. Þetta verður fyrsti leikur þeirra félaga í Evrópu á keppnistímabilinu en þeir dæmdu marga leiki...

Molakaffi: Ómar, Elvar, Gísli, Donni, Þorsteinn, Orri, Jóhannes, Arnór

Evrópumeistarar SC Magdeburg vann hið árlega æfingamót, Wartburg-Cup í Eisenach, í gær. Magdeburg hafði betur gegn danska liðinu Skanderborg AGF, 36:32, í þriðju og síðustu umferð í gær. Ómar Ingi Magnússon skoraði átta mörk og var markahæstur leikmanna Magdeburg....

Þjóðverjar heimsmeistarar í fyrsta sinn – sigruðu Spánverja í bráðabana

Þýskaland varð í kvöld í fyrsta sinn heimsmeistari í handknattleik karla í flokki 19 ára landsliða eftir maraþonleik við Spán í Kaíró, 41:40. Viðureignin var tvíframlengd en úrslit fengust ekki fyrr en í bráðabana í vítakeppni. Þjóðverjar höfðu þá...

Viktor Gísli í sigurliði Barcelona í Lingen

Viktor Gísli Hallgrímsson og samherjar í Barcelona unnu fjögurra liða mót sem fram fór í Lingen í Þýskalandi í gær og dag. Barcelona vann þýsku meistarana Füchse Berlin í úrslitaleik, 34:33. Vítakeppni þurfti til að knýja fram hreinar línur...
- Auglýsing-

Aldís Ásta og Lena Margrét fögnuðu sigri

Svíþjóðarmeistarar Skara HF unnu Eskilstuna Guif IF, 39:25, í fyrsta leik liðanna í riðlakeppni sænsku bikarkeppninnar í kvennaflokki í dag. Leikið var í Eskilstuna. Aldís Ásta Heimisdóttir og Lena Margrét Valdimarsdóttir skoruðu tvö mörk hvor fyrir Skara HF sem...

HM19-’25: Leikjadagskrá – leikir um sæti

Hér fyrir neðan er leikjdagskrá síðustu leikja heimsmeistaramóts 19 ára landsliða karla handknattleik sem fram fer í Kaíró í Egyptalandi. Sætisleikir sunnudaginn 17. ágúst:1. sæti: Þýskaland - Spánn 41:40 (5:4 í vítakeppni sem fór í bráðabana).(36:36), (31:31), (27:27), (14:16).3....

HM19-’25: Reyndum allt – framtíðin er björt

„Við komumst í vandræði strax í byrjun síðari hálfleiks og reyndum allt til þess að stöðva Egyptana en það bara tókst ekki. Við breyttum um varnarleik, fórum í sjö á sex í sókninni og fleira en því miður þá...

Beint: Spánn – Þýskaland, 1. sæti HM19 ára, kl. 16.30

Hér fyrir neðan er hlekkur á streymi frá úrslitaleik Spánar og Þýskalands um gullverðlaun á heimsmeistaramóti 19 ára landsliða karla í handknattleik í Kaíró í Egyptalandi. Leikurinn hefst klukkan 16.30. https://www.youtube.com/watch?v=KD9Ev9D_9sE
- Auglýsing-

Beint: Svíþjóð – Danmörk, 3. sæti HM19 ára, kl. 14

Hér fyrir neðan er hlekkur á streymi frá viðureign Svíþjóðar og Danmerkur um 3. sæti á heimsmeistaramóti 19 ára landsliða karla í handknattleik í Kaíró í Egyptalandi. Leikurinn hefst klukkan 14.00. https://www.youtube.com/watch?v=94W_aPAtc0Q

HM19-’25: Egyptar sterkari á lokasprettinum – Ísland í 6. sæti

Íslenska landsliðið hafnaði í sjötta sæti á heimsmeistaramóti 19 ára landsliða karla eftir tveggja marka tap, 33:31, fyrir heimamönnum í egypska landsliðinu í úrslitaleik um fimmta sætið í Kaíró í dag. Ísland var fimm mörkum yfir að loknum fyrri...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. [email protected]
18542 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -