- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagur bikarmeistari – Desbonnet var hetjan

Dagur Gautason varð í dag franskur bikarmeistari í handknattleik með Montpellier þegar liðið lagði PSG, 36:35, eftir vítakeppni í París. Leikurinn var afar jafn og spennandi frá byrjun til enda. Að loknum 60 mínútum var staðan jöfn 28:28, eftir...

Undanúrslit yngri flokka fara fram í Kórnum í dag

Leikið verður til úrslita um Íslandsmeistaratitla í 3. og 4. flokki karla og kvenna í Kórnum í Kópavogi í dag. Síðustu undanúrslitaleikirnir fóru fram í gær en einnig var leikið til undanúrslita í fimmtudag og föstudag. Hér fyrir neðan...

Myndasyrpa: Sigurgleði Valskvenna – verðlaunaafhending

Sigurlaun í Evrópukeppni félagsliða voru afhent í fyrsta sinn á Íslandi í gær þegar Valur vann Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik. Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari var á úrslitaleiknum í gær og fangaði stemninguna í kringum verðlaunaafhendinguna og þegar Hildur Björnsdóttir, Thea Imani...

Í undanúrslitum ári eftir að hafa verið í fallhættu

Arnór Atlason og liðsmenn hans í TTH Holstebro tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitum um danska meistaratitilinn í handknattleik með jafntefli við GOG, 29:29, á útivelli í næst síðustu umferð riðlakeppni úrslitakeppninnar. TTH Holstebro er í öðru sæti...
- Auglýsing-

Myndasyrpa: Eldri og yngri fögnuðu með Evrópubikarmeisturunum

Hátt í 2.000 áhorfendur studdu og fögnuðu Evrópubikarmeisturum Vals þegar liðið varð fyrst íslenskra kvennaliða Evrópubikarmeistari í handknattleik í gær með sigri á spænska liðinu BM Porriño, 25:24. Fólk á öllum aldri kom inn úr veðurblíðunni í birtuna sem...

Myndasyrpa: Valur – BM Porriño, úrslitaleikurinn

Valur varð í gær Evrópubikarmeistari í handknattleik kvenna, fyrst íslenskra kvennaliða. Valur vann spænska liðið BM Porriño, 25:24, í síðari viðureign liðanna í N1-höllinni á Hlíðarenda í gær og samanlagt, 54:53, í tveimur viðureignum. Myndasyrpa: Eldri og yngri fögnuðu...

„Stóðum okkur eins og hetjur

„Fyrstu viðbrögð eftir leikinn voru að ég var uppgefin og fór grenja. Ég trúði þessu varla,“ sagði Þórey Anna Ásgeirsdóttir leikmaður Evrópubikarmeistarar Val og markadrottning Evrópubikarkeppninnar þegar handbolti.is hitti hana að máli í sigurgleðinni á Hlíðarenda eftir sigurleikinn á...

„Vá, þetta er svo gaman“

„Ég er ennþá að átta mig á þessu,“ sagði Thea Imani Sturludóttir nýkrýndur Evrópubikarmeistari í handknattleik í samtali við handbolta.is eftir að Valur vann BM Porrino, 25:24, í síðari úrslitaleik Evrópubikarkeppninnar í N1-höllinni á Hlíðarenda. Thea skoraði 25. og...
- Auglýsing-

Molakaffi: Tumi, Hannes, Haukur, Arnór

Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fimm mörk og gaf fimm stoðsendingar þegar Alpla Hard vann HC Fivers í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum um austurríska meistaratitilinn í gær, 40:38. Leikið var á heimavelli Hard og varð að framlengja leikinn vegna...

Væru örugg 12 stig

„Tilfinningin er mögnuð. Ég get varla komið þeim í orð,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Vals eftir að hafa stýrt Val til sigurs í Evrópubikarkeppninni í handknattleik kvenna. Ágústi verður sjaldan orðfátt en sigurinn varð þó til þess. „Eftir að...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
17816 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -