- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Danijela Sara heldur áfram að verja mark HK

Danijela Sara Bokan Björnsdóttir markvörður hefur framlengt samning sinn við HK til næstu tveggja ára. Danijela Sara hefur vakið mikla athygli sem markvörður og þrátt fyrir ungan aldur staðið á milli stanganna í marki hjá meistaraflokki síðastliðin tvö tímabil. Einnig...

Útsláttarkeppnin hefst í lok mars

Riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik lauk í gærkvöld. Tólf af 16 liðum halda áfram keppni. Fjögur þeirra fara beint í átta liða úrslit en átta taka þátt í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. Sigurlið útsláttarkeppninnar mæta galvösk í átta liða úrslit...

Einar Bragi komst í útsláttarkeppnina en Stiven sat eftir

Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad gerðu sér lítið fyrir og lögðu Benfica í Lissabon í kvöld í lokaumferð 3. riðils Evrópudeildar karla í handknattleik, 30:22. Sigurinn varð til þess að Kristianstad komst í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar en...

Evrópudeild karla “26: 16-liða úrslit, lokastaðan, 4. umferð

Fjórða og síðasta umferð riðlakeppni 16-liða úrslita Evrópudeildar karla í handknattleik fór fram í kvöld. Efsta liðið í hverjum riðli fer beint í átta liða úrslit. Liðin sem hafna í öðru og þriðja sæti reyna með sér í útsláttarkeppni....
- Auglýsing-

Viggó er orðaður við Flensburg

Viggó Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik er orðaður við þýska handknattleiksliðið Flensburg á samfélagsmiðlum í dag. Hermt er að samningaviðræður standi yfir með það í huga að Viggó gangi til liðs við félagið sumarið 2027. Flensburg er um þessar mundir...

Óðinn Þór og félagar sitja eftir með sárt ennið – aðrir Íslendingar fóru áfram

Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen eru úr keppni í Evrópudeildinni í handknattleik karla. Þeir töpuðu fyrir Fredericia HK, 30:29, á heimavelli í fjórðu og síðustu umferð riðlakeppninnar í kvöld. Kadetten rak lestina af fjórum liðum deildarinnar....

Fer ekki til Kaíró til þess að skíttapa

Ef friður gefst leikur íslenska karlalandsliðið í handknattleik tvo vináttuleiki við Afríkumeistara Egyptalands í Kaíró um miðjan maí. Eins og kom fram á handbolti.is í gær endurgjalda Egyptar heimsóknina með komu hingað til lands í janúar á næsta ári...

Enginn verður í leikbanni í lokaumferð Olísdeildar

Enginn þeirra þriggja leikmanna sem lentu inni á borði aganefndar HSÍ vegna útilokana frá leikjum Olísdeildar karla í 20. og 21. umferð voru úrskurðaðir í leikbann á fundi aganefndar fyrr í dag. Þeir geta andað léttar yfir að verða...
- Auglýsing-

Hörð barátta um síðustu sætin í úrslitakeppninni

Birgir Steinn Jónsson var í leikmannahópi IK Sävehof í gærkvöld þegar liðið vann Amo HK á heimavelli, 35:33, í 24. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. Birgir Steinn skoraði ekki mark í sigurleiknum. IK Sävehof er í fimmta sæti með 29 stig...

Mikilvægur sigur á heimavelli hjá Ými Erni

Ýmir Örn Gíslason og liðsfélagar í Göppingen unnu Eisenach á heimavelli, 28:25, í 24. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í gærkvöld. Með sigrinum færðist Göppingen upp í 10. sæti af 18 liðum deildarinnar með 20 stig, stigi fyrir...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18936 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -