- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

HK í Olísdeild kvenna á ný – Grótta í umspilið

HK varð í kvöld deildarmeistari í Grill 66-deild kvenna í handknattleik og leikur þar með í Olísdeild kvenna á næsta keppnistímabili. HK-liðinu varð ekkert á í lokaumferðinni í kvöld og vann öruggan sigur á Fjölni, 31:20, í Kórnum í...

Tíu marka sigur Fram í síðasta deildarleiknum

Fram vann öruggan sigur á KA/Þór í næstsíðasta leik Olísdeildar kvenna í handknattleik á þessari leiktíð, 35:25. Leikið var í Lambhagahöll Fram í Úlfarsárdal. Þremur mörkum skakkaði á liðunum þegar fyrri hálfleikur var að baki, 15:12, Fram í hag....

Framúrskarandi fyrri hálfleikur Þjóðverja

Þýska landsliðið undir stjórn Alfreðs Gíslasonar vann egypska landsliðið öðru sinni á fjórum dögum í vináttulandsleik að viðstöddum 95.00 áhorfendum í ÖVB-Arena í Brimum í dag, 34:33. Þýska liðið lék frábærlega í fyrri hálfleik og hafði sex marka forskot...

Þórir hefur störf hjá Olympiatoppen

Þórir Hergeirsson hefur verið í ráðgjafastarfi hjá Olympiatoppen í Noregi. Þórir er ráðinn í hlutastarf og mun sameina það núverandi stöðu sinni sem faglegur ráðgjafi hjá Handknattleikssambandi Íslands, auk þess sem hann rekur eigið ráðgjafafyrirtæki. Frá þessu segir TV2...
- Auglýsing-

Dagskráin: Spenna ríkir fyrir lokumferð Grill 66-deildar kvenna

Síðasta umferð Grill 66-deildar kvenna verður leikin í kvöld. Mikil spenna ríkir í toppbaráttunni. HK stendur best að vígi. Liðið hefur tveggja stiga forskot á Gróttu en þarf að fá a.m.k. annað stigið út viðureign við Fjölni í Kórnum...

Myndasyrpa úr Kaplakrika: Ísland – Svíþjóð 27:30

Hátt í 2.000 áhorfendur fylltu íþróttahúsið í Kaplakrika í gær þegar landslið Íslands og Svíþjóðar mættust öðru sinni í vináttuleik í handknattleik karla. Eftir því sem næst verður komist var þetta fyrsti leikur A-landsliðs karla í Kaplakrika síðan 23....

Íslendingaliðið eltir Dortmund eins og skugginn

Blomberg-Lippe heldur áfram að elta Dortmund eins og skugginn í þegar tvær umferðir eru eftir af þýsku 1. deildinni í handknattleik. Aðeins munar einu stigi á liðunum Dortmund í hag en liðin mætast í síðustu umferðinni eftir hálfan mánuð....

Annar sænskur sigur á íslenskri grund

Sænska landsliðið lagði það íslenska öðru sinni í vináttuleik í handknattleik karla í Kaplakrika í kvöld. Að þessu sinni lauk leik með þriggja marka sigri Svía, 30:27, sem voru öflugri allan síðari hálfleikinn. Munaði ekki síst um stórleik Mikael...
- Auglýsing-

Elín Klara og stöllur sóttu tvö stig til Västerås

Ekkert lát er á sigurgöngu Elínar Klöru Þorkelsdóttur og samherja í IK Sävehöf í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Í dag sóttu leikmenn IK Sävehof tvö stig í greipar VästeråsIrsta HF í keppnishöllina í Västerås. Lokatölur, 28:24, í næstsíðasta deildarleik...

Georgíumenn töpuðu fyrir Ísraelum í forkeppni HM

Ísrael komst áfram úr forkeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik eftir að hafa lagt landslið Georgíu samanlagt með eins marks mun, 60:59, í tveimur leikjum sem fram fóru í Georgíu í dag og á fimmtudaginn. Ísraelska landsliðið mætir spænska landsliðinu...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19029 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -