- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Elín Klara sú besta þriðja árið í röð

Elín Klara Þorkelsdóttir landsliðskona og leikmaður Hauka kveður Olísdeild kvenna eftir að hafa verið valin besti leikmaður deildarinnar þriðja árið í röð í uppskeruhófi HSÍ sem haldið var síðdegis í dag. Elín Klara gengur á næstunni til liðs við...

Engrar aðgerðar þörf

Gísli Þorgeir Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður SC Magdeburg staðfesti við Vísis í dag að hann þurfi ekki að gangast undir aðgerð vegna höggs sem hann fékk á vinstri öxlina í viðureign Magdeburg og Lemgo síðasta sunnudag. Beðið...

Valur hefur krækt í Dag Árna frá KA

KA-maðurinn Dagur Árni Heimisson hefur skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild Vals. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til félagsins eftir að Ágúst Þór Jóhannsson tók við stjórnvölum karlaliðsins. Á heimsíðu KA segir að Dagur Árni hafi verið seldur...

MT Melsungen staðfestir komu Reynis Þórs

Þýska handknattleiksliðið MT Melsungen staðfesti í morgun að Reynir Þór Stefánsson, leikmaður Fram og mikilvægasti leikmaður úrslitakeppni Olísdeildar 2025, hafi skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Hann flytur til Melsungen í sumar en samningurinn tekur gildi 1. júlí.Michael...
- Auglýsing-

AEK á sér engar málsbætur – HC Alkaloid er Evrópbikarmeistari

Dómstóll Handknattleikssambands Evrópu, EHF, hefur dæmt HC Alkaloid sigur, 10:0, í síðari úrslitaleik liðsins við AEK Aþenu í úrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik sem fram átti að fara í síðasta mánuði. HC Alkaloid er þar með Evrópubikarmeistari í karlaflokki...

Lindgren er hættur hjá Íslendingaliði

Ola Lindgren fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari Svía er hættur störfum hjá HK Karlskrona hvar hann hefur verið aðstoðarþjálfari um skeið. HK Karlskrona þarf að draga saman seglin að sögn Blekinge Läns Tidning og nýta peninga sína í annað en...

Molakaffi: PSG, Aalborg, Partizan, Corsovic, Grgic, Iversen, Witzke

PSG var franskur meistari 12. árið í röð í gærkvöld þegar liðið vann Istres, 39:31, í næst síðustu umferð deildarinnar. PSG hefur fjögurra stiga forskot í efsta sæti deildarinnar fyrir síðustu umferðina sem fram fer á laugardaginn. Nantes er...

Viktor Gísli kveður Pólland sem meistari – Wisla vann annað árið í röð

Viktor Gísli Hallgrímsson kveður Wisla Plock sem pólskur meistari. Hann lék sinn síðasta leik fyrir félagið í kvöld þegar Wisla Plock lagði Kielce í vítakeppni í síðari úrslitaleik liðanna um pólska meistaratitilinn, 25:24. Vítakeppnina vann Wisla, 3:2. Viktor Gísli sem...
- Auglýsing-

Magdeburgar-menn gera sitt til þess að ná titlinum

Leikmenn Magdeburg halda áfram í vonina um að krækja í þýska meistaratitilinn á endasprettinum. Þeir lögðu Flensburg á heimavelli í kvöld án Gísla Þorgeirs Kristjánssonar og fleiri leikmanna sem eru á sjúkralista, 35:27, og komust þar með í efsta...

Vonirnar runnu út í sandinn – Leipzig tapaði illa á heimavelli

Vonir leikmanna MT Melsungen um þýska meistaratitilinn runnu nánast út í sandinn í kvöld þegar liðið gerði jafntefli við Lemgo, 26:26, á heimavelli í næst síðustu umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Melsungen er stigi á eftir Füchse Berlin...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. [email protected]
18468 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -