- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Rekinn rétt eftir að hafa skrifað undir nýjan samning – Cupic ráðinn

Ekki er nema mánuður síðan forráðamenn Vardar Skopje skrifuðu undir nýjan samning við argentínska þjálfarann Guillermo Milano og allt virtist leika í lyndi. Nú hefur Milano verið rekinn úr starfi og Ivan Cupic ráðinn í hans stað. Óhætt er...

Tinna Valgerður verður áfram með KA/Þór

KA/Þór undirbýr sig nú af kappi fyrir baráttuna í efstu deildinni og var lykilskref tekið í þeirri vegferð í gær þegar Tinna Valgerður Gísladóttir skrifaði undir nýjan samning við félagið. Tinna gekk í raðir KA/Þórs í upphafi árs á lánssamning...

Öruggur sigur á Norður Makedóníumönnum

Íslenska landsliðið vann Norður Makedóníu, 34:28, í þriðju og síðustu umferð F-riðils heimsmeistaramóts 21 árs landsliða í Katowice í Póllandi eftir að hafa verið marki yfir í hálfleik, 15:14. Ísland hafnaði þar með í 3. sæti riðilsins og leikur...

Beint: Ísland – Norður Makedónía, kl. 12

Landslið Íslands og Norður Makedónía mætast í þriðju umferð F-riðils heimsmeistaramóts 21 árs landsliða í handknattleik karla í Katowice í Póllandi klukkan 12. Hér fyrir neðan er hlekkur á streymi frá leiknum. https://www.youtube.com/watch?v=eK1P3BtJ72w
- Auglýsing-

Færeyingar unnu stórsigur – Ísland leikur um sæti 17 til 32.

Íslenska landsliðið leikur um sæti 17 til 32 á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða í handknattleik sama hvernig leikurinn við Norður Makedóníu fer eftir hádegið í dag. Færeyingar unnu Rúmena örugglega, 35:28, í síðustu umferð F-riðils í morgun og vinna...

Beint: Rúmenía – Færeyjar, kl. 9.45 – U21

Landslið Rúmeníu og Færeyja mætast í lokaumferð F-riðils Evrópumóts 21 árs landsliða karla í handknattleik í Katowice í Póllandi. Flautað verður til leiks klukkan 9.45. Ef rúmenska liðið vinnur leikinn við Færeyinga á íslenska landsliðið möguleika á sæti í...

Molakaffi: Smits, Damgaard, Lindberg, Gidsel og fleiri

Hollenski handknattleiksmaðurinn Kay Smits hefur samið við Gummersbach til þriggja ára. Kemur hann til félagsins í sumar eftir tveggja ára vist hjá Flensburg. Smits náði sér aldrei fullkomlega á strik með Flensburg vegna hjartsláttartruflana og var talsvert frá keppni. Forráðamenn...

Elmar er í þriðja sæti

Elmar Erlingsson er í þriðja sæti eftir tvær umferðir á lista markahæstu leikmanna heimsmeistaramóts 21 árs landsliða sem stendur yfir í Póllandi. Elmar hefur skorað 21 mark, fimm færri en Færeyingurinn Óli Mittún sem er markahæstur. Athyglisvert er að...
- Auglýsing-

Kjartan Þór verður áfram með meisturunum

Kjartan Þór Júlíusson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Íslands- og bikarmeistara Fram. Kjartan Þór, sem er 21 árs, er örvhent skytta sem er uppalinn hjá Fram og á að baki farsælan feril hjá yngri flokkum félagsins...

Blær er orðaður við þýskt félagslið

Blær Hinriksson leikmaður Aftureldingar er orðaður við þýska 1. deildarliðið SC DHfK Leipzig í frétt SportBild í dag. Framkvæmdastjóri SC DHfK Leipzig, Karsten Günther, staðfestir í samtali að þeim hafi verið boðnir starfskraftar Blæs. Segir Günther að við leit að...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Netfang: [email protected]
18622 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -