- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Textalýsing: Dregið í riðla undankeppni EM 2026

Klukkan 16 verður dregið í riðla undankeppni Evrópumóts kvenna í borginni Cluj-Napoca. Ísland er ein þeirra þjóða sem tekur þátt í undankeppninni sem hefst í október. Handbolti.is fylgist með drættinum í Rúmeníu í textalýsingu hér fyrir neðan. Dregið...

Handboltaskóli framtíðarinnar: tækninámskeið Sigvalda og Óðins

(Ógreidd fréttatilkynning frá Handboltaskóla Framtíðarinnar.) Skráning er hafin á tækninámskeið Sigvalda og Óðins í samstarfi við Handboltaskóla Framtíðarinnar. Tækninámskeið Handboltaskóla Framtíðarinnar fyrir stráka og stelpur fædd 2009-2010 er tilvalið fyrir iðkendur sem vilja æfa aukalega í sumar. Aðalþjálfarar á tækninámskeiðinu verða landsliðsmennirnir...

Hverjir verða andstæðingar Íslands í undankeppni EM?

Í dag verður dregið í riðla fyrir undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik í Cluj-Napoca í Rúmeníu.Hafist verður handa við að draga klukkan 16 í dag. Bein útsending verður á ruv.is. Einnig fylgist handbolti.is með i textalýsingu. Íslenska landsliðið verður í...

Hádegismolar: Willum, Gonzalez, Danner, Seradilla, Grijseels o. fl.

Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, gefur kost á sér í embætti forseta ÍSÍ á ársþingi sambandsins 16. og 17. maí. Lárus Blöndal forseti ÍSÍ síðustu 12 ár tilkynnti á dögunum að hann sæktist ekki eftir endurkjöri. Willum, sem féll...
- Auglýsing-

Gott veganesti fyrir ferðina til Slóvakíu

„Það var allt annað að sjá til liðsins í dag. Við lékum heilt yfir góðan leik,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Íslandsmeistara Vals eftir sex marka sigur á Haukum, 29:23, í 19. umferð Olísdeildar kvenna í gærkvöld. Með sigrinum...

Dagskráin: Fram mætir ÍR í Skógarseli

Einn leikur fer fram í Olísdeild kvenna í handknattleik í kvöld. Fram sækir ÍR heim í Skógarsel og verður flautað til leiks klukkan 19.30. Fram er í öðru sæti Olísdeildar þegar liðið á þrjá leiki eftir. ÍR-liðið hefur sótt...

Landsliðsmaðurinn var ekki með

Fredericia HK, liðið sem Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar, komst inn á sigurbraut á nýjan leik í gær eftir tvo tapleiki í röð í dönsku úrvalsdeildinni. Fredericia HK vann Grindsted GIF, 35:29, á útivelli. Landsliðsmaðurinn Einar Þorsteinn Ólafsson, sem gengur...

Molakaffi: Haukur, Óðinn, Viktor, Bjarki, Aron, Janus, Elín, Axel, Elías

Haukur Þrastarson og félagar i Dinamo Búkarest eru komnir í undanúrslit rúmensku bikarkeppninnar í handknattleik. Þeir lögðu CSM Focsani, 33:23, á útvelli í átta liða úrslitum í gær. Haukur skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu, eftir því sem...
- Auglýsing-

Fjölnir er fallinn – ljóst hvaða átta lið taka þátt í úrslitakeppninni

Fjölnir er fallinn úr Olísdeild karla í handknattleik eftir að næst síðustu umferð deildarinnar lauk í kvöld. Fjölnir tapaði fyrir Aftureldingu að Varmá, 34:20, á sama tíma og Grótta gerði jafntefli við Hauka á Ásvöllum, 29:29. Grótta hefur þar...

Aldís Ásta er deildarmeistari í Svíþjóð

Aldís Ásta Heimisdóttir og liðsfélagar í Skara HF urðu í kvöld deildarmeistarar í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Skara HF vann Skuru, 28:22, í lokaumferðinni á heimavelli. Á sama tíma náðu IK Sävehof aðeins jafntefli á heimavelli gegn Kungälvs, 23:23....

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
17842 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -