- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Andrea lék við hvern sinn fingur í uppgjöri um þriðja sætið

Andrea Jacobsen landsliðskona í handknattleik fór á kostum með Blomberg-Lippe í kvöld þegar liðið vann Thüringer HC, 36:31, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Með sigrinum hafði Blomberg-Lippe sætaskipti við Thüringer HC, fór upp í þriðja sæti...

Deildarmeistaratitillinn er innan seilingar hjá Val

Valur er kominn með aðra hönd á deildarmeistaratitilinn í handknattknattleik eftir sigur á Haukum, 29:23, í upphafsleik 19. umferðar Olísdeildar kvenna í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Valur hefur þar með 34 stig eftir 19 leiki. Fram, sem á...

Lydía skrifaði undir tveggja ára samning

Lydía Gunnþórsdóttir skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór og verður þar af leiðandi í eldlínunni með liðinu í Olísdeildinni á næstu leiktíð. KA/Þór hefur þegar tryggt sér efsta sætið í Grill 66-deildinni eftir taplaust tímabil. Lydía sem...

Rann í skap og sakaði dómara um óheiðarleika – fær sekt en ekki leikbann

Handknattleiksþjálfarinn Herbert Müller rann í skap eftir tap liðs hans, Thüringer HC, fyrir HB Ludwigsburg í þýsku 1. deildinni um síðustu helgi með eins marks mun, 23:22, í Þýringalandi. Sakaði hann m.a. dómarana um að draga taum meistaraliðsins, HB...
- Auglýsing-

Dagskráin: Stórleikur hjá konum – næst síðasta umferð hjá körlum

Næst síðasta umferð Olísdeildar karla verður leikin í kvöld en samkvæmt vana þá fara tvær síðustu umferðir deildarkeppninnar fram á sama tíma. Mikil spenna er í toppi og á botni Olísdeildar karla í handknattleik. Allir leikir hefjast klukkan 19.30. Efsta...

Molakaffi: Meistarar, Gjekstad, Karabatic, Vlah, frímerki

Odense Håndbold er deildarmeistari í úrvalsdeild kvenna í handknattleik í Danmörku. Liðið hefur unnið allar 23 viðureignir sínar í deildinni fram til þessa. Síðast í gær vann Odense Håndbold lið Silkeborg-Voel, 34:25, og hefur átta stiga forskot þegar þrír...

Dæmdur í fjögurra ára bann vegna lyfjanotkunar

Þýski handknattleiksmaðurinn Nils Kretschmer hefur verið dæmdur í fjögurra ára keppnisbann af lyfjadómstól þýska handknattleikssambandisins. Þetta er einn allra þyngsti dómur sem handknattleiksmaður hefur verið dæmdur í. Kretschmer, sem er 32 ára gamall og var fyrirliði TV Großwallstadt í...

„Ég er spenntur fyrir þessu verkefni“

„Þeir höfðu haft áhuga á að fá mig til starfa um nokkurn tíma en af því varð ekki fyrr en núna,“ segir handknattleiksþjálfarinn Aron Kristjánson í samtali við handbolta.is en hann hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Kúveit í handknattleik til...
- Auglýsing-

Einar Þorsteinn flytur til Þýskalands í sumar

Einar Þorsteinn Ólafsson landsliðsmaður í handknattleik kveður danska úrvalsdeildarliðið Fredericia HK í sumar og gengur til lið við þýska 1. deildarliðið HSV Hamburg. Samningur Einars Þorsteins við þýska liðið er til tveggja ára. Honum er ætlað að styrkja varnarleik...

Björgvin Páll er í úrvalsliðinu

Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður er í úrvalsliði 3. og 4. leikdags undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik. Handknattleikssamband Evrópu valdi hóp átta leikmanna sem þótti skara fram úr í leikjum undankeppninnar í síðustu viku. Björgvin Páll kom inn í íslenska landsliðið...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
17842 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -