- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hefði viljað vinna leikinn með meiri mun

„Ég hefði viljað vinna leikinn með meiri mun. Við klikkuðum á mörgum dauðafærum,“ sagði Skarphéðinn Ívar Einarsson leikmaður Hauka í samtali við handbolta.is eftir átta marka sigur Hauka á RK Jeruzalem Ormoz frá Slóveníu, 31:23, á Ásvöllum í kvöld...

KA/Þór hefur endurheimt sæti í Olísdeildinni

KA/Þór hefur tryggt sér sæti í Olísdeild kvenna í handknattleik á nýjan leik en liðið féll úr deildinni síðasta vor. KA/Þór er deildarmeistari í Grill 66-deild kvenna. Þegar þrjár umferðir eru eftir óleiknar getur ekkert lið komist upp fyrir...

Valsmenn skoruðu 48 mörk í Skógarseli

Valur vann ÍR með 17 marka mun í hreint ævintýralegum markaleik í Olísdeild karla í Skógarseli síðdegis í dag, 48:31. Vafalaust er ár og dagur liðin síðan lið skoraði 48 mörk í kappleik í efstu deild hér á landi....

Átta marka sigur Hauka – hefði getað verið stærri

Haukar eru í góðri stöðu eftir átta marka sigur á slóvenska liðinu RK Jeruzalem Ormoz, 31:23, í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar í handknattleik karla á Ásvöllum í kvöld. Haukar voru sex mörkum yfir í hálfleik, 17:11....
- Auglýsing-

Á brattann var að sækja í Cheb – 11 marka tap

Kvennalið Hauka á verk fyrir höndum í síðari leiknum við tékkneska liðið Hazena Kynzvart í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik um næstu helgi eftir 11 marka tap í Cheb í Tékklandi í dag, 35:24. Leikurinn var í átta liða úrslitum...

Kristrún skoraði sigurmark Fram gegn Selfossi

Kristrún Steinþórsdóttir fyrrverandi leikmaður Selfoss tryggði Fram eins marks sigur á liði Selfoss, 30:29, í Olísdeild kvenna í handknattleik í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Framarar lentu í kröppum dansi nærri leikslokum viðureignarinnar eftir að hafa verið sex mörkum yfir að...

Guðmundur Bragi leikur til úrslita í bikarkeppninni

Guðmundur Bragi Ástþórsson og liðsfélagar í Bjerringbro/Silkeborg leika til úrslita í dönsku bikarkeppninni á morgun eftir sigur á Grindsted GIF, 37:23, í undanúrslitaleik í Jyske Bank Boxen í Herning í dag að viðstöddum 8.500 áhorfendum. Bjerringbro/Silkeborg mætir Aalborg Håndbold...

Stjarnan skoraði ekki mark í 17 mínútur – ÍR komið í fimmta sæti

ÍR og Stjarnan höfðu sætaskipti í Olísdeild kvenna í dag eftir að fyrrnefnda liðið vann viðureign liðanna afar örugglega í Hekluhöllinni í Garðabæ, 28:20. ÍR var átta mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:9, og náði 11 marka forskoti...
- Auglýsing-

Ég tel möguleika okkar vera jafna – erum hrikalega spenntir

„Við erum hrikalega spenntir eins og fyrir fyrri leiki okkar í keppninni. Það er mjög skemmtilegt að fá tækifæri til þess að vera með í Evrópubikarkeppninni, berjast við nýja andstæðinga og velta nýjum flötum fyrir sér. Þátttakan brýtur tímabilið...

Dagskráin: Leikið í fjórum deildum auk Evrópuleiks

Leikið verður í Olísdeildum kvenna og karla og einnig í Grill 66-deildum. Auk þess mætir karlalið Hauka slóvenska liðinu RK Jeruzalem Ormoz á Ásvöllum klukkan 17 í fyrri umferð 16-liða úrslita Evrópubikarkeppni karla. Leikir dagsins Olísdeild kvenna:Hekluhöllin: Stjarnan - ÍR, kl....

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18679 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -