- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Æfingahópur 19 ára landsliðsins valinn – mót í árslok og HM næsta sumar

Heimir Ríkarðsson og Maksim Akbachev hafa valið fjölmennan hóp pilta, 29, til æfinga undir merkjum 19 ára landsliðs karla í handknattleik frá 7. til 11. nóvember. Stór hluti hópsins skipaði 18 ára landsliðið sem náði þeim glæsilega árangri í...

Dagskráin: KA/Þór fær heimsókn í Hafnarfirði

Sjöttu umferð Grill 66-deildar kvenna í handknattleik lýkur í dag með tveimur viðureignum. Efsta lið deildarinnar, KA/Þór fær m.a. FH í heimsókn í KA-heimilið. Með sigri eða jafntefli tekur KA/Þór óskoraða forystu í deildinni á nýjan leik. Grill 66-deild kvenna:KA-heimilið:...

Dönsku meistararnir segja þjálfaranum fyrirvaralaust upp stöfum

Danska meistaraliðið Aalborg Håndbold sagði í morgun upp þýska þjálfaranum Maik Machulla. Hann tók við þjálfun liðsins í sumar þegar Stefan Madsen sagði starfi sínu lausu. Simon Dahl, sem verið hefur aðstoðarþjálfari, tekur við af Machulla og danski landsliðsmaðurinn...

Íslendingar létu til sín taka í Noregi

Norsku meistararnir Kolstad unnu Drammen, 31:26, í norsku úrvalsdeildinni í karlaflokki í Kolstad Arena í Þrándheimi í gær og halda þar með öðru sæti deildarinnar. Kolstad er með 16 stig að loknum níu leikjum. Drammen situr áfram í fjórða...
- Auglýsing-

Molakaffi: Harpa, Sandra, Donni, Arnar, Elías

Harpa María Friðgeirsdóttir skoraði þrjú mörk í fjögurra marka tapi TMS Ringsted til Randers á Jótlandi í gær í næst efstu deild danska handknattleiksins, 26:22.  Randers-liðið var tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 15:13. TMS Ringsted er í...

Yfirlýsing frá KA: Rangar ákvarðanir teknar sem mögulega kostuðu sigur

Handknattleiksdeild KA segir í tilkynningu, sem hún sendi frá sér í kvöld, að röð mistaka hafi verið gerð þegar þjálfara KA var meinað að taka leikhlé undir lok leiks KA og Stjörnunnar í Olísdeild karla á fimmtudaginn. Ennfremur að...

Bjarki og Janus með fimm en Aron frá vegna meiðsla

Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk þegar Veszprém vann HE-DO Gyöngyös B.Braun með 15 marka mun, 40:25, í ungversku 1. deildinni í handknattleik í dag. Aron Pálmarsson lék ekki með vegna meiðsla ekkert fremur en Frakkinn Hugo Descat. Eins...

Íslendingarnir í efsta sætið á nýjan leik

Arnar Freyr Arnarsson, Elvar Örn Jónsson og félagar í MT Melsungen endurheimtu efsta sæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik á nýjan leik í kvöld þegar þeir unnu Erlangen, 32:27, á heimavelli í Rothenbach-Halle í Kassel. Elvar Örn skoraði þrjú...
- Auglýsing-

Orri Freyr hafði naumlega betur í toppslagnum gegn Þorsteini Leó

Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar í meistaraliðinu Sporting Lissabon sýndu í kvöld að þeir eru ennþá með besta liðið í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik þegar þeir lögðu Porto, 31:30, í hnífjöfnum leik í uppgjöri tveggja bestu handknattleiksliða landsins...

Frábær varnarleikur og agaður sóknarleikur

0 https://www.youtube.com/watch?v=XK1lxTGXpsw „Frábær varnarleikur í 45 til 50 mínútur auk agaðs sóknarleiks þar sem við biðum eftir réttu færunum. Ég er bara mjög ánægður með agann á okkar konsepti í dag,“ sagði Sigursteinn Arndal þjálfari FH í samtali við handbolta.is eftir...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Netfang: [email protected]
18657 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -