- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fram hefndi tapsins á síðasta ári – Selfoss er úr leik

Fram tókst í kvöld að hefna tapsins fyrir Selfossi í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins í handknattleik á síðasta ári með öruggum sjö marka sigri gegn liði Selfoss í Sethöllinni á Selfossi í kvöld, 26:19. Framarar tóku öll völd á leikvellinum...

Haukar leika báðar viðureignir í Aserbaísjan

„Við leikum báða leikina úti í Aserbaísjan,“ sagði Andri Már Ólafsson formaður handknattleiksdeildar Hauka í samtali við handbolta.is í dag eftir að hann náði samkomulagi við forráðamenn handknattleiksliðsins Kur í Mingachevir í Aserbaísjan um að báðar viðureignir Hauka og...

Háar sektir og margra leikja bann hjá þjálfurum bestu liða Póllands

Pólska handknattleikssambandið hefur brugðist við því þegar upp úr sauð á milli leikmanna og þjálfara pólsku liðanna Wisla Plock og Industria Kielce í síðasta mánuði. Sló þá í brýnu milli fylkinga utan vallar svo enginn sómi fékkst af auk...

Snorri Steinn kallar inn þrjá leikmenn vegna meiðsla – einn nýliði

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik hefur orðið að gera þrjár breytingar á leikmannahópi Íslands sem mætir Bosníu í Laugardalshöll á miðvikudaginn kl. 19.30. Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen, Benedikt Gunnar Óskarsson, Kolstad, og Birgir Már Birgisson FH...
- Auglýsing-

Sigurjón Friðbjörn er hættur þjálfun Gróttu

Sigurjón Friðbjörn Björnsson er hættur þjálfun kvennaliðs Gróttu að eigin ósk. Þetta hefur handbolti.is samkvæmt heimildum. Ennfremur herma heimildir að Júlíus Þórir Stefánsson taki við þjálfun Gróttuliðsins, a.m.k. til að byrja með. Júlíus Þórir hefur verið aðstoðarþjálfari Sigurjóns. Grótta er...

Dagskráin: Selfoss og Fram mætast í 16-liða úrslitum annað árið í röð

Fyrsti leikur 16-liða úrslitum Poweradebikars kvenna í handknattleik fer fram í kvöld þegar Selfoss og Fram mætast í Sethöllinni á Selfossi. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Bein útsending verður frá leiknum á RÚV2. Selfoss og Fram áttust við í...

Guðmundur Bragi skoraði fimm mörk – jafntefli hjá Fredericia HK

Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði fimm mörk, öll úr vítaköstum, þegar Bjerringbro/Silkeborg og TMS Ringsted skildu jöfn, 28:28, í Silkeborg í gær en leikurinn var liður í 10. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn var afar jafn og spennandi. Ringsted var marki...

Molakaffi: Dana, Birta, Vilborg, Haukur, Tumi

Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handknattleik skoraði sex mörk fyrir Volda þegar liðið tapaði fyrir Pors, 27:26, í næst efstu deild norska handknattleiksins í gær. Volda var með tveggja marka forskot þegar fyrri hálfleikur var að baki, 19:17. Liðunum...
- Auglýsing-

KA/Þór áfram efst og ósigrað – Valur vann einnig

KA/Þór er áfram ósigrað í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í handknattleik. Í kvöld vann KA/Þór lið FH, 29:23, í síðasta leik sjöttu umferðar. Leikið var í KA-heimilinu á Akureyri. Staðan í hálfleik var 15:9.Akureyrarliðið réði lögum og lofum...

Ómar Ingi og Gísli Þorgeir í sigurliði á heimavelli

Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon léku báðir með SC Magdeburg í kvöld á heimavelli þegar liðið vann Lemgo, 30:27, í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Báðir urðu þeir fyrir hnjaski í viðureign Magdeburg og RK Zagreb í...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18739 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -