- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fjórtán marka sigur – Valur stendur vel að vígi

Íslands- og bikarmeistarar Vals standa afar vel að vígi eftir 14 marka sigur á Zalgiris Kaunas, 31:17, í fyrri viðureign liðanna í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í Kaunas í Litáen í dag. Síðari viðureign liðanna verður einnig leikinn ytra...

Burst í Belgíu – tólf leikmenn skoruðu fyrir Hauka

Haukar gjörsigruðu belgíska liðið KTSV Eupen í fyrri viðureign liðanna í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í dag, lokatölur 38:16. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 19:9. Leikurinn fór fram í Eupen í Belgíu, rétt eins og síðari viðureignin á...

Vænleg staða í hálfleik hjá Haukum og Val

Vel gekk hjá íslensku félagsliðunum Haukum og Val í fyrri hálfleik í leikjum þeirra í fyrstu umferð Evrópubikarkeppninnar í handknattleik kvenna. Hálfleikur stendur yfir í báðum viðureignum. Haukar eru tíu mörkum yfir í hálfleik gegn KTSV Eupen, 19:9, en liðin...

Óli hefur samið við GOG til fjögurra ára

Færeyska ungstirnið Óli Mittún hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið GOG til fjögurra ára. Samningurinn tekur gildi næsta sumar. Frá þessu sagði GOG rétt áður en viðureign GOG og Aalborg hófst í dönsku úrvalsdeildinni eftir hádegið í dag. Óli, sem er...
- Auglýsing-

Streymi: Zaslgiris Kaunas – Valur klukkan 14

Streymt verður frá leik Vals og Zaslgiris Kaunas í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í dag. Leikurinn hefst klukkan 14. Hlekkur á streymið er hér fyrir neðan. Um er að ræða fyrri viðureign liðanna í 1. umferð keppninnar. Síðari viðureignin fer...

Dagskráin: Olís kvenna, Grill 66karla, Evrópuleikir

Í dag lýkur 4. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik með viðureign Stjörnunnar og ÍBV í Garðabæ. Leikir 3. umferðar Grill 66-deildar karla fara fram í dag og í kvöld. Viðureignum dagsins í báðum leikjum verður varpað í loftið í...

Arnór Þór stýrði Bergischer til sigurs í toppslag – Tjörvi Týr lét til sín taka

Arnór Þór Gunnarsson stýrði liði sínu, Bergischer HC, til sigurs á GWD Minden í æsispennandi leik í uppgjöri tveggja efstu liða næst efstu deildar þýska handknattleiksins á heimavelli í gærkvöld, 33:32. Bergischer HC hefur þar með unnið fimm fyrstu...

Molakaffi: Aldís, Tumi, Hannes, Grétar

Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði tvö mörk í þriggja marka tapi liðs hennar, Skara HF, á heimavelli í leik við HK Aranäs, 31:28, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í fyrradag. Skara HF hefur unnið enn af þremur fyrstu leikjunum í...
- Auglýsing-

Grill 66kvenna: KA/Þór nálgast HK, fyrsti sigur Víkings, fyrsta tap FH

KA/Þór færðist upp í annað sæti Grill 66-deildar kvenna í kvöld með afar öruggum sigri á táningaliði Vals, Val2, í KA-heimilinu, 25:16, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 12:7. Akureyrarliðið er þar með stigi...

Sætaskipti eftir sigur í Sethöllinni

Selfoss vann sinn fyrsta leik í Olísdeild kvenna í handknattleik í kvöld þegar liðið lagði ÍR, 25:22, í Sethöllinni á Selfossi í fjórðu umferð. Með sigrinum höfðu liðin sætaskipti. ÍR féll niður í neðsta sæti með eitt stig en...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18675 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -