- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Berta Rut klæðist búningi Hauka á ný

Berta Rut Harðardóttir hefur gert samning við Handknattleiksdeild Hauka um að leika með félaginu frá og með næsta tímabili. Berta Rut sem er uppalin Haukakona snýr heim að Ásvöllum eftir fjögur ár erlendis þar sem hún hefur leikið með...

Molakaffi: Lindberg, Krzikalla, Witzke, Čavor

Danski handknattleiksmaðurinn Hans Óttar Lindberg Tómasson hefur tilkynnt að hann gefi ekki oftar kost á sér í danska landsliðið. Hans, sem er 44 ára gamall, lék með landsliðinu í rúma tvo áratugi og alls 308 landsleiki. Hann, nokkuð kominn...

Selfoss og Stjarnan jöfn að stigum fyrir lokaumferðina – þriðja sætið er Hauka

Ekki skýrðust línurnar í fallbaráttu Olísdeildar kvenna í leikjum næstsíðustu umferðar sem fram fóru í kvöld. Stjarnan náði reyndar í stig gegn Fram, 34:34, og stendur jöfn liði Selfoss sem tapaði fyrir Haukum, 30:22, í Sethöllinni. Selfoss og Stjarnan...

Ólafur Andrés yfirgefur HF Karlskrona

Handknattleiksmaðurinn Ólafur Andrés Guðmundsson kveður sænska úrvalsdeildarliðið HF Karlskrona þegar keppnistímabilið verður úti í vor. Félagið tilkynnti þetta í gær. Ólafur Andrés kom til félagsins fyrir þremur árum. Meiðsli hafa sett töluvert strik í reikninginn hjá Ólafi Andrési á...
- Auglýsing-

Anton Gylfi og Jónas dæma í Finnlandi

Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson eru á leiðinni til Finnlands þar sem þeir eiga fyrir höndum að dæma viðureign Finnlands og Svartfjallalands í forkeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla í Vantaa, skammt utan við Helsinki á morgun. Um er...

20 ára landslið kvenna í erfiðum riðli á HM í Kína

Landslið kvenna í handknattleik, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, datt ekki í lukkupottinn þegar dregið var í riðla heimsmeistaramótsins í dag. Ísland dróst í riðil með landsliðum Svartfjallalands og Tékklands auk bandaríska landsliðsins sem er veikasta lið riðilsins....

Elmar verður úr leik næstu þrjár til sex vikur

Elmar Erlingsson handknattleiksmaður hjá þýska liðinu Nordhorn-Lingen verður úr leik í þrjár til sex vikur vegna höggs sem hann fékk á aðra öxlina í viðureign Nordhorn og Potsdam síðasta föstudag. Elmari var hrint er hann var í opnu færi....

Sigvaldi Björn hefur samið við Hannover-Burgdorf

Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik, flytur til Þýskalands í sumar. Hann hefur samið við Hannover-Burgdorf í þýsku 1. deildinni og er ætlað að fylla skarð hægri hornamannsins og fyrirliðans, Marius Steinhauser, sem ákveðið hefur að gerast liðsmaður Rhein-Neckar...
- Auglýsing-

Daniel eltir bróður sinn til Þýskalands

Spænski handknattleiksmaðurinn Daniel Dujshebaev og sonur þjálfarans öfluga, Talants Dujshebaev, verður samherji Reynis Þórs Stefánssonar hjá þýska liðinu MT Melsungen á næstu leiktíð. Dujshebaev, sem árum saman hefur leikið undir stjórn föður síns hjá Indurstria Kielce, samdi við MT...

Dagskráin: Næst síðasta umferð í kvöld

Leikir næstsíðustu umferðar Olísdeildar kvenna fara fram í kvöld. Þegar er ljóst að Valur er deildarmeistari og fer beint í undanúrslit úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn. ÍBV hafnar í öðru sæti og fylgir Valskonum beint í undanúrslitin.Fjögur lið í sætum þrjú...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19030 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -