- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Mosfellingurinn markahæstur hjá Porto

Mosfellska stórskyttan, Þorsteinn Leó Gunnarsson, var markahæstur hjá Porto í stórsigri liðsins á Póvoa, 36:21, á útivelli í kvöld í fjórðu umferð portúgölsku 1. deildarinnar í handknattleik. Þorsteinn Leó skoraði sjö mörk, öll með þrumufleygum svo markvörður Póvoa fékk...

Kolstad hafði ekki erindi sem erfiði í Magdeburg – Barcelona í kröppum dans

Þýska meistaraliðið SC Magdeburg vann sinn fyrsta leik í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í kvöld þegar liðið lagði norsku meistarana, Kolstad, 33:25, á heimavelli. Magdeburg var níu mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 18:9. Íslenskir handknattleiksmenn létu til...

Níu marka sigur í Hertzhöllinni

Fram átti ekki í vandræðum með að vinna nýliða Gróttu í þriðju umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi í kvöld, 29:20, eftir að hafa verið sjö mörkum yfir í hálfleik, 15:8.Fram hefur þar með unnið þrjá...

Orri Freyr og félagar fóru illa með Íslendingaliðið – stórsigur hjá Bjarka

Orri Freyr Þorkelsson og samherjar í portúgalska meistaraliðinu Sporting Lissabon fóru illa með danska Íslendingaliðið Fredericia HK í annarri umferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í kvöld. Viðureign liðanna fór fram í Jyske Bank Arena í Óðinsvéum og lauk...
- Auglýsing-

Sigurður Dan sneri sig á ökkla

Sigurður Dan Óskarsson markvörður Stjörnunnar tognaði á ökkla á dögunum og leikur ekki með Stjörnunni um óákveðinn tíma. Hann sneri sig á ökkla á æfingu fyrir viku, daginn áður en Stjarnan sótti ÍBV heim í Olísdeild karla. Sigurður Dan leikur...

Óvissa hvort Viggó verður í Íslendingaslag

Óvissa ríkir um hvort Viggó Kristjánsson landsliðsmaður í handknattleik leiki með SC DHfK Leipzig á sunnudaginn gegn VfL Gummersbach í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Viggó fann til meiðsla snemma í leik Leipzig og Füchse Berlin á sunnudaginn og...

Útsendingaréttur Evrópuleikja FH og Vals hefur verið seldur

Streymisveitan Livey hefur keypt útsendingaréttinn hér á landi frá leikjum Evrópudeildar karla í handknattleik, en í henni taka þátt m.a. Íslandsmeistarar FH og Evrópubikarmeistarar Vals. Einnig varð Livey sér út um réttinn á útsendingum frá leikjum Meistaradeildar karla og...

Átta lið voru dregin saman í 32 liða úrslitum bikarkeppni karla

Í morgun var dregið í 32 liða úrslit Powerade-bikars karla og í 4. flokk karla.Á ársþingi HSÍ í sumar var þar samþykkt að lið í Olísdeildum sætu hjá í 32 liða úrslitum Poweradebikarsins í handknattleik karla. Þess vegna voru...
- Auglýsing-

Dagskráin: Þriðja umferð og hefst og lýkur

Þriðju umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik lýkur í kvöld með tveimur viðureignum. Á sama tíma hefst þriðja umferð Olísdeildar karla með fjórum viðureignum. Ljóst að í mörg horn verður að líta fyrir áhugafólk um handknattleik. Olísdeild kvenna:Hertzhöllin: Grótta - Fram,...

Stigið er afar mikilvægt fyrir okkur

https://www.youtube.com/watch?v=0w0LX0Q_SYw „Stigið er afar mikilvægt fyrir okkur. Það hefði verið mjög þungt að ná ekki að minnsta kosti stigi úr þessum leik, ekki síst eftir síðasta leik okkar á undan,“ segir Sólveig Lára Kjærnested þjálfari ÍR eftir jafntefli við ÍBV...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18684 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -