- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagskráin: 16-liða úrslitum lýkur

Sex síðustu leikir 16-liða úrslita Poweradebikars karla í handknattleik fara fram í kvöld. Tveir leikir voru háðir í gær og komust ÍR og KA áfram en Þór og ÍBV 2 heltust úr lestinni. Leikir kvöldsins Poweradebikar karla, 16-liða úrslit karla:Afturelding -...

Molakaffi: Hákon, Bjarki, Viktor, Monsi, Birta

Hákon Daði Styrmisson var markahæstu hjá Eintracht Hagen með átta mörk í þriggja marka sigri á Tusem Essen í 2. deild þýska handknattleiksins í gær. Leikið var á heimavelli Hagen. Tvö marka sinna skoraði Eyjamaðurinn úr vítaköstum. Hagen er...

Dagur fór á kostum – Kolstad vann – fyrsta tap Drammen

Dagur Gautason fór á kostum með ØIF Arendal í dag og skoraði átta mörk í níu skotum í fimm marka sigri liðsins á Kristiansand, 36:31, á heimavelli. Akureyringurinn sýndi gamalkunna takta á heimavelli og var markakhæstur. Ekkert markanna skoraði...

Arnar Birkir og félagar fyrstir til leggja stein í götu toppliðsins

Arnar Birkir Hálfdánsson og liðsfélagar í Amo HK risu upp á afturlappirnar í dag eftir þrjá tapleiki í röð í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik og voru fyrstir til að vinna lið Malmö, 29:26. Malmö-liðar höfðu unnið fimm fyrstu viðureignir...
- Auglýsing-

Sigur nægði Selfossi ekki til þess að komast áfram

Sigur Selfoss á AEK Aþenu, 27:24, í síðari viðureigninni við AEK Aþenu í 2. umferð Evrópubikarkeppninnar í handknattleik kvenna nægði liðinu ekki til þess að komast í næstu umferð. AEK hafði betur, 32:26, í fyrri leiknum ytra fyrir rúmri...

Valur flaug áfram og mætir Blomberg-Lippe í nóvember

Íslandsmeistarar Vals í handknattleik kvenna komust í dag í síðari umferð forkeppni Evrópudeildar kvenna í handknattleik með öðrum sigri sínum á hollensku meisturunum JuRo Unirek VZV, 30:26, í N1-höllinni á Hlíðarenda. Valur vann einvígið samanlagt, 61:56. Í síðari umferð forkeppninnar,...

Jökull skaut ÍR-ingum í átta liða úrslit

Jökull Blöndal Björnsson skaut ÍR-ingum í átta liða úrslit Poweradebikarsins í handknattleik karla í dag. Hann skoraði sigurmarkið beint úr aukakasti þegar tvær sekúndur voru til leiksloka í viðureign ÍR og Þórs í Skógarseli, 33:32, eftir æsispennandi lokamínútur. ÍR...

KA lét Eyjamenn ekki slá sig út af laginu

KA varð fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Poweradebikar karla í handknattleik í dag. KA vann ÍBV 2, 33:25, í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum. ÍBV, liðið sem vann Hörð í sögulegum leik í 32-liða...
- Auglýsing-

Ómar Ingi skoraði 15 mörk í Hamborg

Ómar Ingi Magnússon átti stórleik í dag og skoraði helming marka SC Magdeburg í naumum sigri á HSV Hamburg, 30:29, í viðureign liðanna í Hamborg í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Ómar Ingi skoraði átta af mörkunum 15 úr...

Valur og Selfoss verða í Evrópuslag í dag

Kvennalið Vals og Selfoss verða bæði í eldlínunni í dag í Evrópukeppni félagsliða í handknattleik á heimavöllum sínum. Valsliðið tekur á móti hollenska meistaraliðinu JuRo Unirek í N1-höllinni klukkan 16 í síðari leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar....

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18188 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -