- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ágúst tryggði fyrsta sigur HK – Afturelding áfram efst – úrslit kvöldsins

Ágúst Guðmundsson tryggði HK fyrsta sigurinn í Olísdeild karla á leiktíðinni í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið, 34:33, gegn FH í Kaplakrika. HK var tveimur mörkum undir í hálfleik, 19:17, en léku mun betur en FH-liðið í síðari hálfleik...

Viktor Gísli heimsmeistari með Barcelona

Viktor Gísli Hallgrímsson varð heimsmeistari félagsliða með samherjum sínum í Barcelona í kvöld. Barcelona vann ævintýralegan sigur á One Veszprém, 31:30, í tvíframlengdum úrslitaleik í Kaíró. Leikmenn Barcelona skoruðu tvö mörk á síðustu 45 sekúndunum og tryggðu sér þar...

Evrópumeistararnir voru ekki í vanda

Evrópumeistarar SC Magdeburg áttu ekki í teljandi erfiðleikum með Afríkumeistara Al Ahly í viðureigninni um þriðja sætið á heimsmeistaramóti félagsliða í Kaíró í dag, lokatölur 32:23. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 19:11. Mestur varð munurinn 12 mörk, 28:16,...

Beint: Veszprém – Barcelona, kl. 17 – úrslitaleikur

Ungverska meistaraliðið One Veszprém mætir spænsku meisturunum, Barcelona, í úrslitum heimsmeistaramóts karla í handknattleik í Kaíró í Egyptalandi klukkan 17. Bjarki Már Elísson leikur með One Veszprém og Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður er leikmaður Barcelona. Hér fyrir neðan er streymi á...
- Auglýsing-

Þjálfari Skjern varð að taka pokann sinn

Mathias Madsen var í gær sagt upp starfi þjálfara danska úrvalsdeildarliðsins Skjern. Illa hefur gengið hjá Skjern á leiktíðinni. Liðið er með þrjú stig af 10 mögulegum í úrvalsdeild karla og féll auk þess út í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar...

Einn frá Íslandi í færeyska landsliðinu

Valsmaðurinn Allan Norðberg er eini færeyski handknattleiksmaðurinn sem leikur hér á landi sem er í 19 karla landsliðshópi sem Peter Bredsdorff-Larsen landsliðsþjálfari og Hjalti Mohr Jacobsen aðstoðarmaður hans hafa valið til undirbúnings og þátttöku á fjögurra landsliða móti í...

Beint: SC Magdeburg – Al Ahly SC, kl. 14.15

Evrópumeistarar SC Magdeburg og Afríkumeistarar Al Ahly mætast í úrslitaleik um bronsverðlaunin á heimsmeistaramóti félagsliða í handknattleik karla í Kaíró klukkan 14.15. Elvar Örn Jónsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon leika með SC Magdeburg. https://www.youtube.com/watch?v=9i13t_Hf4jQ

Kostur að vera þrjóskur – þess vegna hélt ég áfram

„Það var fyrst og fremst ólýsanlegt að komast inn á völlinn aftur,“ segir handknattleiksmaðurinn Darri Aronsson hjá Haukum þegar handbolti.is heyrði í honum hljóðið. Eftir þriggja ára þrautargöngu lék Darri loksins handbolta á ný þegar hann með Haukum mætti...
- Auglýsing-

Grótta færðist upp að hlið Fram

Grótta færðist upp að hlið Fram 2 á toppi Grill 66-deildar karla í gærkvöld. Grótta lagði Hauka 2, 30:27, í upphafsleik 5. umferðar í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi. Grótta hefur átta stig að loknum fimm viðureignum. Fram 2 á fjóra...

Jóhannes Berg í úrvalsliði dönsku deildarinnar

Jóhannes Berg Andrason var valinn í úrvalslið 5. umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar eftir frábæran leik með TTH Holstebro gegn meisturum Aalborg Håndbold í Álaborg á sunnudaginn. Úrvalsliðið er tekið saman af stjórnendum deildarkeppninnar. Íslendingar eru ekki á hverjum degi í...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18189 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -