Leiktímar leikja í átta liða úrslitum Coca Cola-bikarkeppni karla og kvenna hafa verið ákveðnir.
Leikið verður í karlaflokki annað kvöld, mánudag, en í kvennaflokki á þriðjudaginn. Fjórir leikjanna verða í beinni útsendingu RÚV.
Átta liða úrslit karla, mánudagur 13. september:
18.00 Stjarnan – KA – TM-höllin – sýndur á RÚV.
19.30 ÍR – Fram – Austurberg.
19.30 Fjölnir – Afturelding, Dalhús.
20.30 Valur – FH, Origohöllin – sýndur á RÚV.
Átta liða úrslit kvenna, þriðjudagur 14. september:
18.00 ÍBV – Valur, Vestmannaeyjar – sýndur á RÚV.
19.30 Haukar – Fram, Schenkerhöllin.
19.30 Víkingur – FH , Víkin.
20.00 Stjarnan – KA/Þór, TM-höllin, sýndur á RÚV.
Undanúrslitaleikir Coca Cola-bikars kvenna fara fram miðvikudaginn 29. september. Undanúrslit í karlaflokki fara fram sólarhring síðar.
Úrslitaleikir Coca Cola-bikarkeppninnar 2021 verða laugardaginn 2. október. Ekki hefur verið greint frá hvaða keppnishús hýsir leikina í undanúrslitum og úrslitum en víst er að Laugardalshöllin verður ekki tilbúin til kappleikja á þessum tíma.