- Auglýsing -
- Auglýsing -

Birkir er orðinn leikmaður Wakunaga í Japan

Birkir Benediktsson, Aftureldingu, t.v. í leik með Aftureldingu. Hann er kominn til Japans. Ljósmynd/Raggi Óla
- Auglýsing -

Birkir Benediktsson hefur samið við japanska handknattleiksliðið Wakunaga Pharmaceutical og hafa félagaskipti hans frá Aftureldingu verið frágengin, eftir því sem fram kemur á vef Handknattleikssambands Íslands.

Sá þriðji í Japan

Birkir verður þriðji íslenski handknattleiksmaðurinn til þess að leika með Wakunaga og í Japan. Hinir eru Dagur Sigurðsson sem var með liði félagsins frá 2000 til 2003 og Sigfús Páll Sigfússon. Sá síðarnefndi var með Wakunaga frá 2014 til 2016.

Wakunaga er með bækistöðvar í Hírsósíma. Eftir því sem næst verður komist er tíu liða atvinnumannadeild karla í Japan.

Birkir, sem er örvhent skytta, hefur leikið með Aftureldingu allan sinn feril frá yngri flokkum og upp í meistaraflokk og verið í stóru hlutverki.

Karlar – helstu félagaskipti 2024

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -