- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Bjarki Már skoraði fjögur mörk í fimmtánda sigrinum

- Auglýsing -

Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk, eitt þeirra úr vítakasti, í fimmtánda sigurleik One Veszprém í ungversku 1. deildinni í handknattleik á heimavelli. One Veszprém lagði þá FTC-Green Collect (Ferencváros), 43:29, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 22:16.


Gasper Marguc var markahæstur með sex mörk og Ali Zein og Dragan Pechmalbec skoruðu fimm mörk hvor. Miklós Karai skoraði átta mörk fyrir FTC-Green Collect.

One Veszprém hefur 30 stig að loknum 15 leikjum. Pick Szeged, sem Janus Daði Smárason leikur með, er með 27 stig eftir 16 leiki.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -