- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Bjarki Már tapaði í Kielce – Füchse og Aalborg eru komin í átta liða úrslit

- Auglýsing -

Bjarki Már Elísson og liðsfélagar í ungverska meistaraliðinu One Veszprém töpuðu með eins marks mun fyrir Indurtria Kielce í Póllandi í kvöld, 36:35, í 11. umferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. One Veszprém hangir áfram á þriðja sæti riðilsins, alltént eitthvað fram eftir kvöldi, með 12 stig. Kielce er stigi á eftir og Sporting í fimmta sæti og á leik til góða í kvöld við Nantes.

Bjarki Már nýtti sín skot

Bjarki Már skoraði þrjú mörk í leiknum og var með fullkomna nýtingu. Ahmed Hesham Elsayed Moham var markahæstur með níu mörk og Ivan Martinovic var næstur með sjö mörk.

Alex Dujshebaev og Piotr Adam Jarosiewicz skoruðu sex mörk hvor fyrir pólska liðið.

Misstu niður fjögurra marka forskot

One Veszprém var með tveggja marka forskot í hálfleik, 19:17, og náði mest fjögurra marka forskoti snemma í síðari hálfleik áður en pólska liðinu tókst að hleypa spennu í viðureignina og tryggja sér sigurinn með tveimur síðustu mörkum leiksins.

Tvö áfram í átta liða úrslit

Füchse Berlin varð þriðja liðið til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar. Þýsku meistararnir unnu Dinamo Búkarest, 27:21, í rúmensku höfuðborginni í kvöld.

Tap One Veszprém varð einnig til þess að Aalborg Håndbold, sem vann Kolstad, í gær er öruggt í átta liða úrslit. Ekkert liðanna sem eru á eftir Füchse Berlin og Aalborg Håndbold getur komið í veg fyrir að liðin hafni í tveimur efstu sætunum sem tryggir sæti í átta liða úrslitum og þar með hlaupa liðin tvö yfir fyrstu umferð útsláttarkeppninnar sem liðin í þriðja, fjórða, fimmta og sjötta sæti taka þátt í.

Í gærkvöld varð ljóst að Evrópumeistarar SC Magdeburg og Spánarmeistarar Barcelona eiga víst sæti í átta liða úrslitum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -