Svíinn Oscar Carlén er talinn vera einn þeirra þjálfara sem til greina kemur sem eftirmaður Rúnars Sigtryggssonar í stól þjálfara þýska handknattleiksliðsins SC DHfK Leipzig. SportBild í Þýskalandi, sem oft hefur hitt naglan á höfuðið, segir að Carlén hafi verið heimsókn í Leipzig um helgina og jafnvel sést í slagtogi með Karsten Günther framkvæmdastjóra Leipzig.
Samningsbundinn til 2028
Carlén hefur þjálfað sænska liðið Ystads IF með afbragðsárangri síðustu fimm ár en það varð m.a. meistari í vor og hafði töluverða yfirburði í deildarkeppninni. Böggull fylgir skammrifi fyrir forráðamenn Leipzig að Carlén hefur nýverið skrifað undir samning við Ystads til næstu þriggja ára. Þar af leiðandi gæti það kostað Leipzig skildinginn að kaupa upp samning Carlén í Ystad.
Þekkir til í Þýskalandi
Carlén þekkir vel til í Þýskalandi og talar málið reiprennandi sem er skilyrði. Hann lék í fimm ár í landinu. Fyrst með Flensburg og síðan í tvö hjá HSV Hamburg áður þrálát hné meiðsli bundu enda á ferlinni 2013 þegar Carlén var aðeins 25 ára gamall.
Daninn Nicolej Krickau, sem varð að taka pokann sinn hjá Flensburg, undir lok síðasta árs hefur einnig verið nefndur til sögunnar í starf þjálfara hjá SC DHfK Leipzig. Babb virðist hafa komið í bátinn í viðræðum Krickau og stjórnenda SC DHfK Leipzig.