Riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik lauk í gærkvöld. Tólf af 16 liðum halda áfram keppni. Fjögur þeirra fara beint í átta liða úrslit en átta taka þátt í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. Sigurlið útsláttarkeppninnar mæta galvösk í átta liða úrslit...
Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad gerðu sér lítið fyrir og lögðu Benfica í Lissabon í kvöld í lokaumferð 3. riðils Evrópudeildar karla í handknattleik, 30:22. Sigurinn varð til þess að Kristianstad komst í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar en...
Fjórða og síðasta umferð riðlakeppni 16-liða úrslita Evrópudeildar karla í handknattleik fór fram í kvöld. Efsta liðið í hverjum riðli fer beint í átta liða úrslit. Liðin sem hafna í öðru og þriðja sæti reyna með sér í útsláttarkeppni....
Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen eru úr keppni í Evrópudeildinni í handknattleik karla. Þeir töpuðu fyrir Fredericia HK, 30:29, á heimavelli í fjórðu og síðustu umferð riðlakeppninnar í kvöld. Kadetten rak lestina af fjórum liðum deildarinnar....
Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði sex mörk, og var markahæstur þegar Porto lagði Granollers öðru sinni á einni viku í 16-liða úrslitum riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik, 34:33, í hnífjöfnum leik í Porto í kvöld. Sjötta og síðasta markið skoraði...
Þriðja umferð af fjórum í riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik fór fram í kvöld. Síðasta umferð keppninni fer fram eftir viku.Efsta liðið í hverjum riðli þegar upp verður staðið kemst í átta liða úrslit. Liðin sem hafna í öðru...
Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad halda áfram í vonina um sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik eftir að þeir lögðu þýska liðið MT Melsungen, 31:30, í Kristianstad Arena í kvöld. IFK á eftir...
Áhorfandi á viðureign Flensburg og Montpellier í Evrópudeild karla í handknattleik lést meðan leikurinn fór fram á heimavelli Flensburg. Framkvæmdastjóri Flensburg staðfestir andlátið í tilkynningu félagsins í kvöld. Ekki kemur fram hvort hinn látni hafi verið stuðningsmaður Flensborgar-liðsins eða...
Stórleikur Reynis Þórs Stefánssonar dugði þýska liðinu MT Melsungen ekki þegar það sótti Vardar heim til Skopje í annarri umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld. Reynir Þór skoraði 12 mörk og gaf fimm stoðsendingar í fjögurra marka sigri Vardar,...
Önnur umferð af fjórum í riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik fór fram í kvöld. Liðin tóku með sér úrslit í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Þar af leiðandi eru þau skráð með fjóra leiki þótt einungis tvær umferðir séu að baki...
Stiven Tobar Valencia og samherjar í portúgalska liðinu Benfica standa vel að vígi í 3. riðli 16-liða úrslita Evrópudeildar karla eftir annan sigurinn í röð. Í kvöld lagði Benfica sænska liðið IFK Kristianstad sem Einar Bragi Aðalsteinsson leikur með,...
Reynir Þór Stefánsson var markahæstur leikmanna MT Melsungen er þeir unnu harðsóttar sigur á sænska liðinu IFK Kristianstad, 33:29, í Rothenbach Halle í Kassel í kvöld í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik. Reynir Þór skoraði sjö mörk en...
Keppni hófst í kvöld í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handknattleik. Keppnin fer fram í fjórum fjögurra liða riðlum og taka liðin með sér úrslit í 32-liða riðakeppninni sem leikin var frá október og fram í byrjun desember á...
Elverum vann öruggan sigur á spænska liðinu Granollers, 37:28, í fyrstu umferð 2. riðils 16-liða úrslita Evrópudeildar karla í kvöld. Tryggvi Þórisson var að vanda með Elverum og skoraði eitt mark en var fyrst og síðast fastur fyrir í...
Stiven Tobar Valencia og samherjar í Benfica hófu keppni í 16-liða úrslitum riðlakeppni Evrópudeildarinnar af krafti í kvöld. Þeir lögðu HC Vardar, 40:35, í Lissabon. Stiven Tobar var næstmarkahæstur leikmanna Benfica með sex mörk.
Átta marka forskot í hálfleik
Benfica-piltar voru...