- Auglýsing -
- Auglýsing -

Evrópukeppni

- Auglýsing -

Melsungen tókst að snúa við taflinu

Þýska handknattleiksliðið MT Melsungen, sem Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson leika með, tókst að snúa við taflinu í síðari viðureigninni við danska liðið Fredericia HK í kvöld og komast í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar í handknattleik. Eftir...

Stórleikur Donna í Flensborg

Stórleikur Kristjáns Arnar Kristjánssonar, Donna, nægði Skanderborg AGF ekki til þess að slá út þýska liðið Flensburg í síðari viðureign liðanna í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld. Donni skoraði 11 mörk í jafntefli, 33:33, í GP Joule Arena...

Á brattann að sækja hjá Íslendingum í Evrópudeildinni

Lið íslenskra handknattleiksmanna áttu á brattann að sækja í öllum fjórum viðureignum fyrri umferðar umferðar útsláttarkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik í kvöld. Öll hin svokölluðu Íslendingalið töpuðu leikjum sínum og eiga erfið verkefni fyrir höndum þegar síðari viðureignirnar fara...
- Auglýsing -

Útsláttarkeppnin hefst í lok mars

Riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik lauk í gærkvöld. Tólf af 16 liðum halda áfram keppni. Fjögur þeirra fara beint í átta liða úrslit en átta taka þátt í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. Sigurlið útsláttarkeppninnar mæta galvösk í átta liða úrslit...

Einar Bragi komst í útsláttarkeppnina en Stiven sat eftir

Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad gerðu sér lítið fyrir og lögðu Benfica í Lissabon í kvöld í lokaumferð 3. riðils Evrópudeildar karla í handknattleik, 30:22. Sigurinn varð til þess að Kristianstad komst í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar en...

Evrópudeild karla “26: 16-liða úrslit, lokastaðan, 4. umferð

Fjórða og síðasta umferð riðlakeppni 16-liða úrslita Evrópudeildar karla í handknattleik fór fram í kvöld. Efsta liðið í hverjum riðli fer beint í átta liða úrslit. Liðin sem hafna í öðru og þriðja sæti reyna með sér í útsláttarkeppni....
- Auglýsing -

Óðinn Þór og félagar sitja eftir með sárt ennið – aðrir Íslendingar fóru áfram

Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen eru úr keppni í Evrópudeildinni í handknattleik karla. Þeir töpuðu fyrir Fredericia HK, 30:29, á heimavelli í fjórðu og síðustu umferð riðlakeppninnar í kvöld. Kadetten rak lestina af fjórum liðum deildarinnar....

Þorsteinn Leó markahæstur og Porto fór áfram

Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði sex mörk, og var markahæstur þegar Porto lagði Granollers öðru sinni á einni viku í 16-liða úrslitum riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik, 34:33, í hnífjöfnum leik í Porto í kvöld. Sjötta og síðasta markið skoraði...

Evrópudeild karla “26: 16-liða riðlakeppni, úrslit staðan, 3. umferð

Þriðja umferð af fjórum í riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik fór fram í kvöld. Síðasta umferð keppninni fer fram eftir viku.Efsta liðið í hverjum riðli þegar upp verður staðið kemst í átta liða úrslit. Liðin sem hafna í öðru...
- Auglýsing -

Vonin lifir áfram hjá Einari Braga og félögum

Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad halda áfram í vonina um sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik eftir að þeir lögðu þýska liðið MT Melsungen, 31:30, í Kristianstad Arena í kvöld. IFK á eftir...

Áhorfandi lést á Evrópuleik í Flensburg

Áhorfandi á viðureign Flensburg og Montpellier í Evrópudeild karla í handknattleik lést meðan leikurinn fór fram á heimavelli Flensburg. Framkvæmdastjóri Flensburg staðfestir andlátið í tilkynningu félagsins í kvöld. Ekki kemur fram hvort hinn látni hafi verið stuðningsmaður Flensborgar-liðsins eða...

Reynir Þór átti stórleik í Skopje – Þorsteinn þandi út marknetin í Granollers

Stórleikur Reynis Þórs Stefánssonar dugði þýska liðinu MT Melsungen ekki þegar það sótti Vardar heim til Skopje í annarri umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld. Reynir Þór skoraði 12 mörk og gaf fimm stoðsendingar í fjögurra marka sigri Vardar,...
- Auglýsing -

Evrópudeild karla “26: 16-liða riðlakeppni, úrslit staðan, 2. umferð

Önnur umferð af fjórum í riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik fór fram í kvöld. Liðin tóku með sér úrslit í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Þar af leiðandi eru þau skráð með fjóra leiki þótt einungis tvær umferðir séu að baki...

Misjafnt gengi Íslendinga í Evrópudeildinni

Stiven Tobar Valencia og samherjar í portúgalska liðinu Benfica standa vel að vígi í 3. riðli 16-liða úrslita Evrópudeildar karla eftir annan sigurinn í röð. Í kvöld lagði Benfica sænska liðið IFK Kristianstad sem Einar Bragi Aðalsteinsson leikur með,...

Reynir Þór markahæstur – Einar öflugur – Þorsteinn skoraði ekki í tapleik

Reynir Þór Stefánsson var markahæstur leikmanna MT Melsungen er þeir unnu harðsóttar sigur á sænska liðinu IFK Kristianstad, 33:29, í Rothenbach Halle í Kassel í kvöld í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik. Reynir Þór skoraði sjö mörk en...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -