- Auglýsing -
- Auglýsing -

Evrópukeppni

- Auglýsing -

Stjörnumenn stíga inn á sviðið í Baia Mare

Stjarnan mætir rúmenska liðinu CS Minaur Baia Mare í fyrri umferð forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik í dag. Viðureignin fer fram í Baia Mare í Rúmeníu og hefst klukkan 15. Ekki er vitað til þess að leiknum verði streymt...

„Þetta eru stórir sterkir gaurar“

Handknattleikslið Stjörnunnar kom til Baia Mare í Rúmeníu seint í gær eftir langt og strangt ferðalag frá Íslandi. Framundan er viðureign Stjörnunnar og CS Minaur Baia Mare á laugardaginn í fyrri umferð forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik. Hrannar Guðmundsson þjálfari...

Leikdagar Evrópuleikja Vals og Selfoss staðfestir

Ákveðnir hafa verið leikdagar og leiktímar Vals í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar kvenna í handknattleik og Selfoss í annarri umferð Evrópubikarkeppninnar. Kvennalið Selfoss tekur þátt í Evrópukeppni félagsliða í fyrsta sinn. Byrja í Hollandi Fyrri viðureign Vals og hollenska liðsins JuRo...
- Auglýsing -

Stjarnan mætir til leiks í Rúmeníu eftir fjórar vikur

Fyrri viðureignin Stjörnunnar og CS Minauer Baia Mare í forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik fer fram laugardaginn 30. ágúst í Maramures í Rúmeníu. Flautað verður til leiks klukkan 15. Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur staðfest leikdag og tíma á...

Framarar taka á móti Þorsteini Leó og félögum í fyrstu umferð

Íslands- og bikarmeistarar Fram hefja keppni í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik karla á heimavelli þriðjudaginn 14. október gegn Þorsteini Leó Gunnarssyni og samherjum í FC Porto. Fyrir ári hófu Þorsteinn Leó og liðsmenn FC Porto einnig keppni í Evrópudeildinni...

Þorsteinn og félagar koma aftur til Íslands – Fram í hörkuriðli – Stjarnan bíður

Fram verður í D-riðli með Þorsteini Leó Gunnarssyni og félögum FC Porto í Evrópudeild karla í handknattleik sem hefst 14. október. Dregið var í morgun. Auk Fram og FC Porto verður sigurliðið úr forkeppnisleikjum Elverum frá Noregi og spænska...
- Auglýsing -

Ljóst í fyrramálið hvaða liðum Fram mætir

Íslands- og bikarmeistarar Fram komast að því á tíunda tímanum í fyrramálið hverjir verða andstæðingar í 32-liða úrslitum riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik karla næstu leiktíð. Fram verður í öðrum styrkaleikaflokki af fjórum þegar dregið verður. Tuttugu lið hafa frátekin...

Silfurlið Tyrklands væntanlegt í Kaplakrika

Silfurlið tyrknesku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla, Nilüfer BSK, sækir FH væntanlega heim í október í annarri umferð Evrópubikarkeppni karla, 64-liða úrslit. Alltént drógust liðin saman í morgun og er gert ráð fyrir að fyrri viðureignin verði í Kaplakrika 11....

Aþenuferð bíður kvennaliðs Selfoss

Kvennalið Selfoss mætir AEK frá Aþenu í fyrsta leik félagsins í Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik. Dregið var í morgun og fallist liðin á að leika heima og að heiman verður fyrri viðureignin í Aþenu 27. eða 28. september. Öðru...
- Auglýsing -

Evrópuævintýri Stjörnunnar hefst í Rúmeníu

Stjarnan mætir gömlum Íslandsvinum, rúmenska liðinu CS Minaur Baia Mare, í forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik í lok ágúst og í byrjun september. Takist Stjörnumönnum að ryðja rúmenska liðinu úr vegi tekur Stjarnan sæti í riðlakeppni Evrópudeildar karla, 32-liða...

Elín Rósa getur mætt Val í fyrsta Evrópleiknum með Blomberg-Lippe

Íslandsmeistarar Vals og Evrópubikarmeistarar kvenna mæta hollensku meisturunum JuRo Unirek VZV frá Hollandi í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar í handknattleik í lok september og í byrjun október. Fyrri viðureignin verður í Hollandi en sú síðari á Hlíðarenda ef liðin...

Textalýsing: Dregið í fyrstu umferðir Evrópukeppninnar

Klukkan 9 verður byrjað að draga í fyrstu umferðir Evrópubikarkeppni karla og kvenna og í forkeppni Evrópudeildar karla og kvenna í höfuðstöðvum EHF í Vínarborg. Fjögur íslensk félagslið eru á meðal þeirra sem dregin verða út. Handbolti.is freistar þess að...
- Auglýsing -

Andstæðingar Vals í forkeppni Evrópudeildar

Evrópubikarmeistarar og Íslandsmeistarar Vals komast að því í fyrramálið hver andstæðingur þeirra verður í 1. umferð forkeppni Evrópudeildar kvenna í handknattleik 27. september og 5. október. Dregin verða saman 18 lið í níu viðureignir. Sigurliðin taka sæti í annarri...

Hverjum getur Stjarnan mætt í forkeppninni?

Stjarnan verður á meðal 22 liða sem verða í skálunum þegar dregið verður í forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik í fyrramálið.Tveimur af liðunum 24 sem skráð eru til leiks hefur verið raðað niður, þ.e. RK Partizan frá Serbíu og...

Valur þarf að feta einstigi tveggja umferða til að komast í Evrópudeildina

Evrópubikarmeistarar Vals verða að mæta til leiks strax í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar kvenna í handknattleik í lok september. Íslandsmeistararnir eru eitt 18 liða í fyrstu umferð. Sigurliðin níu úr fyrstu umferð komast áfram í aðra umferð forkeppninnar sem...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -