Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk og gaf eina stoðsendingu þegar lið hennar, Skara HF, vann VästeråsIrsta HF, 30:27, í annarri viðureign liðanna í dag í 8-liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Leikið var í Västerås.
Skara HF hefur þar...
Stiven Tobar Valencia og liðsfélagar í Benfica komust í undanúrslit portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik í gærkvöld með naumum sigri á Póvoa AC Bodegão, 35:34, á heimavelli.
Benfica mætir Águas Santas Milaneza í undanúrslitum sem leikin verða heima og að heima...
Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar í IK Sävehof standa vel að vígi eftir tvo sigurleiki á Skuru IK í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik kvenna. Í gærkvöld vann IK Sävehof aðra viðureign liðanna, 33:24, í Skuru og...
Sporting Lissabon, sem Orri Freyr Þorkelsson leikur með, og Janus Daði Smárason og liðsfélagar í Pick Szeged standa vel að vígi eftir að hafa unnið andstæðinga sína í fyrri leikjum útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í kvöld. Sporting lagði...
Sigurganga Gummersbach í þýsku 1. deildinni í handknattleik á árinu hélt áfram í kvöld þegar liðið lagði Bergischer HC, 39:30, í Mitsubishi Electric Halle í Düsseldorf. Með sigrinum treysti Gummersbach stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar. Liðið er aðeins...
Haukar mæta FH-ingum í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Haukar lögðu Aftureldingu í oddaleik í átta liða úrslitum í Kuehne+Nagel höllin á Ásvöllum í kvöld, 32:24. Fyrsti undanúrslitaleikur FH og Hauka fer fram í Kaplakrika þriðjudaginn 7. apríl.
Viðureign Hauka...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum.
Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...
Stjórnendur þýsku deildarkeppninnar í handknattleik karla standa frammi fyrir óvenjulegum vanda. Hann er sá að forsvarsmenn nokkurra liða 3. deildar hafa ekki minnsta áhuga á að færast upp í aðra deild. Segja þeir félög sín ekki hafa efni á...
Birgir Steinn Jónsson var markahæstur leikmanna IK Sävehof er þeir hófu úrslitakeppnina í sænsku úrvalsdeildinni af miklum krafti í gær með sigri á Hammarby IF, 28:26. Leikið var í Stokkhólmi, á heimavelli Hammarby.
Birgir Steinn, sem hafði hægt um sig...
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk og var með fullkomna skotnýtingu í stórstigi Kadetten Schaffhausen á RTV 1879 Basel, 45:29, í lokaumferð A-deildarinnar í Sviss í gærkvöld. Ekkert markanna skoraði Óðinn Þór úr vítaköstum.
Kadetten Schaffhausen varð deildarmeistari með 50...
Stjarnan og Grótta mætast í úrslitum umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik. Liðin lögðu andstæðinga sína í undanúrslitum öðru sinni í kvöld sem nægir til þess að binda enda rimmur liðanna. Grótta lagði Víking í Virkinu í Safamýri, 28:22, og...
Hörður leikur til úrslita í umspili Olísdeildar karla í handknattleik eftir sigur á Gróttu, 39:38, í tvíframlengdum háspennuleik í íþróttahúsinu á Torfnesi í kvöld. Jhonatan C. R. Dos Santos skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu 80 mínútna kappleiks. Hörður mætir...
Fram mætir Val í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna. Það varð staðfest í kvöld eftir annan sigur Fram-liðsins á ÍR í síðari viðureign liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Lambhagahöllinni í kvöld, 29:25. Framarar unnu fyrri viðureignina, 31:27. Þar af...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá umspils Olísdeildar karla í handknattleik sem hófst föstudaginn 27. mars. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem keppninni vindur fram með úrslitum, leikdögum og leiktímum.
Leikir umspilsins verða sendir út á Handboltapassanum.
Undanúrslit:27. mars: Stjarnan - Fjölnir...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum.
Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...