„Leikurinn er afar mikilvægur fyrir okkur því víst er að með hagstæðum úrslitum þá verður stigið mikilvægt skref í átt að markmiði okkar sem er að komast á næsta stórmót, EM 2026,“ segir Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik...
Handknattleiksmaðurinn Atli Steinn Arnarson hefur samið við ÍBV. Atli Steinn hefur síðustu tvö ár leikið með Gróttu en var það áður með FH. Auk þess að hafa átt sæti í yngri landsliðum Íslands, m.a. í 20 ára landsliðinu á...
Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna mætir færeyska landsliðinu í næstsíðustu umferð undankeppni EM 2026 í þjóðarhöll Færeyinga, Við Tjarnir, í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið en sigur færir þau skrefi...
Unglingalandsliðsmaðurinn Kristófer Tómas Gíslason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt Fram.
Kristófer Tómas, sem er nýorðinn 18 ára gamall, þykir mikið efni í handknattleiksmann. Hann lék á þremur vígstöðum á liðnu tímabili: í 3. flokki, lék...
Undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik 2026 hófst miðvikudaginn 15. október 2025 og lýkur sunnudaginn 12. apríl 2026. Leikið er í sex fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið hvers riðils auk fjögurra liða með bestan árangur í þriðja sæti tryggja...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá umspils Olísdeildar karla í handknattleik sem hófst föstudaginn 27. mars. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem keppninni vindur fram með úrslitum, leikdögum og leiktímum.
Úrslit:
8. apríl: Stjarnan - Hörður, kl. 18.30.11. apríl: Hörður - Stjarnan.15....
FH-ingar fengu fyrsta vinninginn í undanúrslitaeinvíginu við Hauka í Olísdeild karla í handknattleik í kvöld. FH vann, 27:21, á heimavelli eftir að hafa verið marki undir í hálfleik, 12:11. Næsta viðureign liðanna verður í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum á...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum.
Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...
Þýska handknattleiksliðið MT Melsungen, sem Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson leika með, tókst að snúa við taflinu í síðari viðureigninni við danska liðið Fredericia HK í kvöld og komast í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar í handknattleik. Eftir...
Stórleikur Kristjáns Arnar Kristjánssonar, Donna, nægði Skanderborg AGF ekki til þess að slá út þýska liðið Flensburg í síðari viðureign liðanna í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld. Donni skoraði 11 mörk í jafntefli, 33:33, í GP Joule Arena...
Birgir Steinn Jónsson og félagar hjá IK Sävehof eru komnir í vænlega stöðu í rimmu sinni við Hammarby eftir annan sigur í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik, 28:26, á heimavelli í kvöld. Þriðja viðureign liðanna fer fram...
Dregið var í dag í riðla Opna Evrópumóts 16 ára landsliða kvenna sem fram fer í Partille í Svíþjóð 29. júní til 3. júlí. Ísland verður eitt 20 þátttökuþjóða á mótinu. Dróst lið þjóðarinnar í fyrsta riðil.
Riðill 1: Ungverjaland,...
Á dögunum samdi Þór Akureyri við danska handknattleiksmanninn Bertram Simonsen hjá Lemvig-Thyborøn og í dag segir félagið frá komu tveggja landa Simonsens, Mikkel Jensen og Oliver Christensen.
Jensen er 20 ára hægri skytta og 192 cm á hæð frá Silkeborg....
Norska handknattleikskonan Trude Blestrud Håkonsen hefur sagt skilið við KA/Þór eftir árs viðdvöl og náð samningi við Stjörnuna sem tekur yfir næsta keppnistímabil, 2026/2027. Stjarnan sagði frá þessum tíðindum í dag.
Håkonsen hefur skrifað undir tveggja ára samning, reyndar eins...
Ívar Logi Styrmisson hefur náð samkomulagi við handknattleiksdeild Fram um að samningur hans við félagið verði framlengdur til næstu tveggja ára. Ívar Logi kom til Fram frá Gróttu fyrir fjórum árum. Hann var markahæsti leikmaður Fram í Olísdeildinni í...