- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Molakaffi: Sveinn, Arnór, Benedikt, Sigvaldi, Guðmundur, staðan

Sveinn Jóhannsson skoraði fjögur mörk fyrir Kolstad í gær þegar liðið vann stórsigur á Halden TH, 33:19, í fyrstu umferð átta liða úrslita norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Leikið var í Þrándheimi. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrisvar fyrir Kolstad. Bræðurnir Arnór...

Elísa tognaði á ökkla – óvíst hvort meiðslin eru alvarleg

Landsliðskonan öfluga Elísa Elíasdóttir meiddist á hægri ökkla á síðustu mínútu sigurleiks Íslands á Ísrael í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu í handknattleik í kvöld, 39:27. Í hraðaupphlaupi rakst Elísa, sem ekki var með boltann, utan í eina af...

„Ég átti von á hverju sem er“

„Ég er heilt yfir sáttur með leikinn. Ég er ánægður með hvernig stelpurnar kláruðu þetta verkefni eftir mjög sérstaka daga. Ég átti þess vegna von á hverju sem er. Það er karakter í þeim,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna...
- Auglýsing -

„Ég er stolt af liðinu“

„Fyrri hálfleikur var mjög góður og lagði grunninn að sigrinum. Fagleg frammistaða,“ sagði Steinunn Björnsdóttir fyrirliði íslenska landsliðsins eftir að það vann ísraelska landsliðið, 39:27, í fyrri viðureign þjóðanna í umspili HM kvenna í kvöld. „Næst á dagskrá er að...

Stórsigur við sérstæðar aðstæður

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna vann ísraelska landsliðið örugglega, 39:27, í fyrri viðureign þjóðanna í umspili heimsmeistaramótsins í kvöld. Staðan í hálfleik var 20:10. Eftir leiknum í kvöld að dæma þá á íslenska landsliðið greiða leið áfram á heimsmeistaramótið....

Níu marka sigur Fredericia sem færðist upp í 3. sæti

Fredericia HK færðist upp í þriðja sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag með öruggum sigri á GOG, 28:20, á heimavelli í næst síðustu umferð deildarinnar. Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Fredericia HK í leiknum en Guðmundur...
- Auglýsing -

Anna Þyrí skrifar undir tveggja ára samning

Anna Þyrí Halldórsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór og leikur því áfram með liðinu en KA/Þór tryggði sér aftur sæti í Olísdeildinni í handbolta með sannfærandi sigri í Grill 66-deildinni í vetur.Anna Þyrí sem er...

Stefnir í að kona taki við danska landsliðinu í fyrsta sinn í nærri 60 ár

Danskir fjölmiðlar fullyrða að Helle Thomsen verði næsti þjálfari danska kvennalandsliðsins í handknattleik. Thomsen verður þar með fyrsta konan í nærri sex áratugi til þess að þjálfa danska kvennalandsliðið. Jesper Jensen stýrir danska landsliðinu í síðasta sinn í tveimur...

Síðast vann Ísland með samanlagt 17 marka mun

Fyrri viðureign íslenska landsliðsins og þess ísraelska í umspili heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik fer fram í kvöld. Síðari viðureignin verður háð annað kvöld. Samanlagður sigurvegari leikjanna öðlast keppnisrétt á heimsmeistaramótinu sem haldið verður í Holland og Þýskalandi 26. nóvember...
- Auglýsing -

Molakaffi: Dagur, Gérard, Portner, Damgaard, Adzic

Dagur Gautason lék ekkert með Montpellier í gær þegar liðið vann Limoges, 31:25, í undanúrslitum frönsku bikarkeppninnar í handknattleik. Dagur var í leikmannahópi Montpellier. PSG og Chambéry mætast í hinni viðureign undanúrslita í dag.  Evrópumeistarar Barcelona staðfestu í gær að...

Selfoss vann í maraþonleik í Safamýri

Selfoss vann Víking eftir maraþonleik í Safamýri í kvöld og leikur til úrslita í umspili Olísdeildar karla við Gróttu. Fyrsti úrslitaleikurinn verður væntanlega í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi fimmtudaginn 17. apríl. Eftir tvær framlengingar þá tókst Selfossliðinu að vinna með...

Gróttumenn eru komnir í úrslit

Grótta tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum umspils Olísdeildar karla. Grótta vann Hörð með 11 marka mun, 38:27, í öðrum og um leið síðari leik liðanna í undanúrslitum umspilsins á Ísafirði í kvöld. Gróttta mætir Selfoss í úrslitarimmu...
- Auglýsing -

Ísland í fjögurra heimsálfu riðli á HM 19 ára landsliða

Íslenska landsliðið dróst í ágætan riðil í dag þegar dregið var í riðla heimsmeistaramóts 19 ára landsliða karla í handknattleik. Mótið fer fram í í fjórum keppnishöllum í Kaíró í Egyptalandi frá 6. til 17. ágúst í sumar.Ísland var...

Aron Rafn hefur ákveðið að hætta

Aron Rafn Eðvarðsson markvörður Hauka lék sinn síðasta leik á ferlinum í gær þegar Hauka töpuðu öðru sinni fyrir Fram í átta liða úrslitum Olísdeildar karla. Aron Rafn staðfesti í samtali við mbl.is að nú færu skórnir á hilluna...

Stórleikur Bjarka Más skilaði honum í úrvalsliðið

Bjarki Már Elísson landsliðsmaður í handknattleik er í úrvalsliði 22. umferðar ungversku 1. deildarinnar í handknattleik. Er þetta í fyrsta sinn á leiktíðinni sem Bjarki Már hreppir hnossið.Bjarki Már skoraði 10 mörk og var markahæstur hjá One Veszprém í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -