„Þetta var örugglega einn okkar besti leikur eftir áramótin. Vörn og markvarsla var frábær,“ sagði Stefán Árnason þjálfari Aftureldingar glaður í bragði eftir að flautað var til leiksloka í Myntkauphöllinni í kvöld þar sem Mosfellingar unnu sannfærandi sigur á...
FH sópaði Íslandsmeisturum Fram úr leik í átta liða úrslitum Olísdeildar í kvöld með öruggum fimm marka sigri, 32:27, í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Þar með náðu FH-ingar að svara fyrir tap fyrir Fram í undanúrslitum úrslitakeppninnar á síðasta ári...
Afturelding tryggði sér oddaleik í rimmunni við Hauka í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Aftureldingarmenn unnu Hauka, 26:22, í Myntkauphöllinni að Varmá í kvöld. Oddaleikur liðanna verður á Ásvöllum á fimmtudaginn klukkan 18.
Sterkur varnarleikur og frábær frammistaða...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum.
Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...
Haukur Þrastarson er í liði 26. umferðar í þýsku 1. deildinni eftir stórleik sinn með Rhein-Neckar Löwen á laugardaginn. Hann skoraði þá 15 mörk í 18 skotum og gaf auk þess átta stoðsendingar í 14 marka sigri Rhein-Neckar Löwen...
Útsláttarkeppni Meistaradeildar kvenna lauk um helgina. Þar með liggur fyrir hvaða lið mætast í átta liða úrslitum síðla í næsta mánuði. Meðal viðureigna í átta liða úrslitum verður á milli danska meistaraliðsins Odense Håndbold og Evrópumeistara Györi Audi ETO...
Andy Schmid landsliðsþjálfari Sviss í handknattleik karla hefur tekið að sér þjálfun HC Kriens-Luzern, eins af sterkari handknattleiksliðum Sviss. Samhliða nýja starfinu verður Schmid áfram landsliðsþjálfari. Hann þekkir vel til hjá félaginu en þar lauk hann frábærum handknattleiksferli fyrir...
Katla María Magnúsdóttir var markahæst hjá Holstebro með sjö mörk þegar liðið vann SIK Viborg, 36:24, í síðustu umferð næstefstu deildar danska handknattleiksins í gær. Nokkuð er síðan Holstebro vann deildina og tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni á næsta...
Fyrstu viðureignir undanúrslita umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik voru háðar í dag. Báðar voru þær fremur ójafnar. Grótta vann Víking með 13 marka mun, 29:16, í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi og Stjarnan lagði FH, 27:18, í Hekluhöllinni í Garðabæ. Vinna...
Hörður frá Ísafirði gerði sér lítið fyrir og lagði Gróttu, 31:28, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla í handknattleik í dag. Leikið var í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Gróttumenn verða að bíta í skjaldarrendur þegar liðin mætast...
Valur og KA eru komin áfram í undanúrslit úrslitakeppni Olísdeildar karla. Valur lagði HK, 32:28, í annarri viðureign liðanna í átta liða úrslitum í Kórnum í kvöld. KA lagði ÍBV öðru sinni í átta liða úrslitum, að þessu sinni...
Ýmir Örn Gíslason og liðsfélagar í FrishAuf! Göppingen lyftust upp í 9. sæti þýsku 1. deildarinnar í dag með sigri á HC Erlangen á heimavelli, 27:24. Ýmir Örn skoraði eitt mark í sigrinum sem var sanngjarn enda heimaliðið lengst...
Einar Bragi Aðalsteinsson varð sænskur bikarmeistari í dag með liði sínu IFK Kristianstad þegar liðið vann Ystads IF HF, 40:37, í úrslitaleik í Halmstad Arena. Þetta er fyrsti bikarmeistaratitill Einars Braga með liðinu og reyndar aðeins í annað sinn...
Portúgalska handknattleikssambandið ætlar að hefja rannsókn á dularfullu atviki sem átti sér stað fyrir viðureign FC Porto og Sporting Lissabon í efstu deild portúgalska handknattleiksins í karlaflokki í Dragão Arena í Porto í gærkvöld. Eins og handbolti.is sagði frá...
Óvíst er hvenær Jóhanna Margrét Sigurðardóttir leikur næst með Haukum. Hún fékk höfuðhögg í viðureign Hauka og Stjörnunnar í lokaumferð Olísdeildar fyrir rúmri viku og hefur alls ekki jafnað sig. Gat hún ekki tekið þátt í fyrsta leik Hauka...